Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 54

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Side 54
92 RÓKM i:\NTIR N. Kv'. skáldsins svo óskeikull, að slík kvæði hans séu yíirleitt verulega líívænleg eða minnis- t.jStæð. Hagmælskan er oftast í bezta lagi, og létt yfir kvæðunum flestum, en persónuleg, frumleg og sterk eru þau ekki. Naumast fer hjá því, að lesandanum detti ekki Tómas Guðmundsson æði oft í hug, við lestur þess- ara Ijóða, efnisval hans, bragarhættir og tón. tegund, en óvíða verður sá samanburður Kjartani í vil. En þrátt fyrir allt, sem miður fer, liygg eg, að svo muni fleirum fara en mér, að þeim \erði hlýtt til höfundarins við lestur kvæðanna, því að andi góðs drengs og gáfaðs legurðardýrkanda svífur þar yfir vötnum. Þá hefur Norðri nýlega gefið út fjórar þýddar skáldsögur. Br þar fyrst að nefna Á Svörtuskerjum, ástarsögu eftir Emilie Car- lén. Sveinn Víkingur íslenzkaði. Saga þessi er mikil að vöxtum og skemmtileg aflestrar. enda hefur h-ún notið mikilla vinsælda í heimalandi höfundarins, Svíþjóð, og hlaut skáldkonan verðláun fyrir söguna á sínum tíma hjá akademíinu sænska. Hefur bókin verið jrýdd á margar þjóðtungur, og nú hef- ur séra Sveinn Víkingur snarað henni á þróttmikla og snjalla íslenzku. Verður þessi alþýðlega skemmtisaga vafalaust mikið keypt og lesin hér á landi. Grænadalskémgurinn nefnist þriðja sagan í sagnaflokki þeim eftir norska skáldið Sven Moren, er á íslenzku nefnist einu nafni Feðgarnir á Breiðabólli. Helgi Valtýsson hefur íslenzkar þessar sögur, og eru nti all- mörg ár síðan sii fyrsta þeirra, Stórviði, kom út í ísl. þýðingu. Þetta eru sveitar- og ættar- sögur norskar, og býsna margt líkt og skylt með fólki því og umhverfi, sem þar er lýst, og íslenzku þjóðlífi og staðháttum. Mun það auðvitað eiga sinn þátt í vinsældunt þeim, sem þessar góðti og liollu sögur hafa notið hér. — Loks skal lauslega getið hér tveggja bóka, er Norðri heftir nýlega gefið út, og einkum eru ætlaðar unga fólkinu: Nú fáttm við að kynnast Beverly Gray í sagnaflokki Glarie Blank, eftir að skólaár- unum er iokið og starfið og lífsbaráttan hefst á nýjum vettvangi. Nú er það Beveriy Gray fréttaritari, sent er aðalpersónan í fimmtu bókinni, er segir frá þessari ungu og sérlega vinsælu kvenhetju,- En skólasystur hennar eru þó ekki alveg horfnar af sjónar- sviðinu, þótt vegir hafi skilið í skól'anum, þvþað sumar þeirra taka drjúgan þátt í æv- intýrunum, sem bíða Beverly í hinu nýja, „spennandi" starfi. Kristmundur Bjarnason hefur þýtt jtessa bók, sem og hinar fyrri Beverly-sögur. — Benni í frumksógum Ameríku hei-tir leynilögreglusagan, er hér verður látin reka lestina, og heyri egsagt, að unglingum og reyfaralesendum lrér á landi og erlendis þyki „Benna-’sögurnar" harla ske m m t i I egt lestrarefni. Allar eru bækur þessar vel og smekklega gefnar tit, enda eru þær prentaðar í Prent- verki Odds Björnssoriar og bundnar af Véla- bókbandinu á Akureyri, og er hvort tveggja trygging fyrir smekklegum frágangi og góðri vinnu. J. Fr. ÍSLENDINGASÖGUR. Hin nýja útgáfa þeirra. Island hefur verið lyrir Norðurlönd hið sama og Grikkland fyrir löndin við Mið- jarðarhaf. Fornrit Grikkja veita þjóðunum \ ið Miðjarðarhaf þekkingu á sögu og fornri menningu jreirra, sem þær annars \issu ekkert um. I íslenzk fornrit verða Norður- landajrjóðirnar að sækja jrekkingu um sögu sína, trúanbrögð og menningu á tímabili, sem nær yfir margar aldir. ísland er tiltölulega snautt land af forn- um menjum. Htis vor hafa verið bvggð úr mjög forgengilegu efni allt fram að seinustu tímum. Ef vér komum í Skálholt eða Hóla, þessa fornu höfuðstaði jrjóðarinnar í sjö aldir, þá sést ekki neitt, sem minnir á þau

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.