Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Síða 16
N. Kv. Hrakningur Stefáns frá Reykjum. Eftir Ásniund Sveinsson. (Hcr prentað cftir handriti Guðjóns Jónssonar frá ! Ijollum.j Stefán hét maður og var Stefánsson; liann bjó á Reykjum í Mjóafirði eystra. Hann var vel greindur, skrifari góður, smiður og málari, hafði hann þó engrar fræðslu notið, en húmaður var Iiann ekki að því skapi. Af því að hann var greindari og betur að sér en fólk flest um þær mundir, var hann hald- inn margkunnandi, enda var liann ekki \ ið alþýðu skaj), en vænn maður og vandaður. Hann fór eitt sinn sjóveg úr Mjóafirði sem leið liggur norður til Seyðisfjarðar, og er þá fyrir Dalatanga að sækja og Skálanesbjarg. Það var seint um sumar á útengjaslætti. Salómon prestur Bjarnason hélt þá Dverga- stein og Fjörð í Mjóafirði og bjó á Krossi í Mjóafirði, en hélt fyrir aðstoðarprest Ölaf Indriðason, föður Jóns Olafssonar í Winni- peg og Páls umboðsmanns á Hallfreðarstöð- um. Séra Olafur bjó á Dvergasteini. Þá bjó bóndi sá á Skálanesi, er Jón hét og var Ein- arsson. Hann var búhöldur góður 02: binn ákafasti vinnumaður, en fremur þótti hann aðsjáll og nirfilslegur og ekki hjálpfús við aðra. Nú er að segja frá ferðum Stefáns. Hann fór beiman að á I)áti litlum vð þriðja mann og var eitt kvenmaður. Veður var allgott en nótt orðin dimm o<j rnikil undiralda. Oa' með því að leiðin var löng var orðið dimmt af nóttu er hann kom undir Skálanesbjarg, en þar er skerjótt, ef ekki er farið nógu djúpt. Vildi þá svo til að báturinn lenti of nærri einum boðanum í myrkrinu og vissu þeir eigi fyrr en holskefla hvolfdi undir þeim; .komst Stefán á kjöl, en stúlkan og maðurinn losnuðu bæði við bátinn og drukknuðu þar. Bar svo bátinn frá boðan- um. Stefán hélt sér dauðahaldi á bátnum á kjöl, og bar bátinn svo smátt og smátt fyrir falli og vindi inn og norður með bjarginu. Sagði Stefán svo frá, að það hefði verið hin hræðilegasta nótt, senr hann hefði lifað, því að auk þess hve illt hefði verið að halda sér á kjölnum, er kvika kom undir bátinn, sá hann bæði verulegar og ímyndaðar of- sjónir í náttmyrkrinu. Verulegar að því jeyti, að hann átti að mæta ásókn sels, er lagði bátinn í einelti. Honum tókst þó að fæla selinn frá sér, ýmist með því að reka upp hljóð, berja í bátinn.eðalíkjaeftirskoti. (lekk svo alla nóttina til þess bjart var orð- ið. Var þá svo af honum dregið af vosbúð og þreytu og kulda, að hann mátti varla halda sér lengur. Var þá báturinn kominn inn fyr- ir Skálanestanga djúpt undan landi. Vildi honum það til lífs, að þá kyrrði sjóinn, er inn kom á fjörðinn, og veður var hið bezta, sólskin og þurrkur. Hann kallaði nokkrum sinnum; en með því að mjög var af honum dregið, er ekki hægt að segja, hvort köllin Iiafa heyrzt í land eða eigi. Þennan sama dag var Jón bóndi á Skála- nesi snemma á fótum, því að hann átti hey mikið undir, sem hann vildi hirða og koma í garð, þar sem þurrkur var góður. Lét hann binda heim heyið um daginn en tók sjálfur á móti og ldóð upp. Sá hann allan daginn úr landi djúpt á bótinni — svo nefndist vík- in innanvert við Skálanestangann — eitt- hvað líkt bát á hvolfi og einhverja druslu á, en hann gaf sér þó ekki tíma til að at- huga það neitt frekar, heldur hélt áfram hirðingunni til kvölds þangað til lokið var. Rak svo bátinn til og.frá um daginn. þang- að til hann sást frá öðrum bæjum og var bjargnð þaðan; var Stefán j)á orðinn með-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.