Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Page 33

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1947, Page 33
N. Kv. OLDUKAST 71 böndum og það angrar mig mjög, að þuría að baka henni þá sorg að skilja hana hér eftir eina og umkomulausa." „Berið engar áhyggjur fyrir framtíð henn- ar; á Karlsro skal hún æfinléga eiga \ íst at- hvarf." „Eg ivona nú að hún hafi bæði þrek og vilja til að vinna sjáLf fyrir sér," mælti frú Bloch. „Hún er bæði svo menntuð orðin og þeim hæfifeikum gædd, að það er henni engin vorkunn; og nú á tímum er kven- lólkið farið að fá aðgang að ýmsiskonar störfum engu síður en karlmennirnir." „Já, en hún er svo ung ennþá." „Já, en hún er bráðþroska og einkum hefir hún tekið alveg ótrúlegum þroska nú þessar síðustu vikur. Það er eins og það liggi í grun hennar. að hún þurfi brátt á því að halda að geta hjálpað sér sjálf.“ „Þér hafið æfinlega haft mikla gleði og ánægju af dóttur yðar.“ „Já, drottinn kallaði hina aðra ástvini mína til sin, eiginmanninn og synina, er voru stoð okkar og stytta í lífinu. Þegar svo tvær veikar og vanmáttugar konur eiga að fara að berjast við lílfið og erfiðleikana í sameiningu, þá er eðlilegt að ákomist svo ástúðlegt og viðkvæmt samlband þeirra á niilli, og ekki sí/.t þegar það eru þá móðir og dóttir. að þeim verði ærið þungt um að skilja, er dauðinn ber að dyrum. já, Margrét mín hel'ur frá því er hún var barn, oft séð skort og vöntun á ýrnsu og borið það með mér með þolinmæði, og hún hefur kysst margt tárið burt af hvörmum mér og oft haft af mér, er illa á mér lá með barnslegri kæti. hlátri og græskulausri fyndni.“ „Hún er nú víst að koma inn!“ hrópaði Cban. hann Iieyrði gengið upp riðið. Nei, það var ungfrú Kruse sem inn kom. Hún stokkroðnaði, er luin sá Gran, heilsaði hon- nm og sneri sér s\ro að fri'i Bloch og spurði viðkvæm hvernig henni liði. „Hvernig stendur á því að þér komið heim uin þetta leyti dagsins?“ spyr frúin fremur kuldalega. „Eg heyrði sagt að Margrét væri boðin eittlnað út í bæ og ætla eg því að vera hjá yður í kvöld. Viljið þér það ekki?“ „A ekki að dansa í kvöld?“ „Jú, en mig langar ekki svo mjög til að dansa." „Það gegnir furðu um stúlku á yðar aldri.“ „Eg var ekki vel fyrirkölluð, og svo að vera innan um alla ókunnuga! Það greip mig einhvers konar heimþrá, einhver ómót- stæðileg löngun til að sitja nú hér í næði Iieima hjá yður, frú Bloch." Hi'tn kraup á kné fyrir framan legubekkinn og kyssti á hendina á frúnni; en það greip frú Bloch þá svo ákaft hóstakast, að hún gat ekki þakk- að henni fyrir þessa hugulsemi. Ungfrú Kruse stóð upp. Hún bar hend- urnar upp að eyrunum og það hringlaði og glamraði í silfurpeningunum og silfur- glingrinu, er liékk við armböndin hennar og hún hrópaði upp yfir sig: „Ó, þessi fjör- ugu danslög hjóma fyrir eyrum mér og ætla alveg að æra mig!“ „Hvernig gengur með hljóðfærasláttinn hjá yður sjálfri? Er að færast meiri styrkur í úlnliðina?" spurði frúin. „Nei, eg finn engan bata og er þó búin að vera hér þrjár vikur.“ „Þér ættuð að leita til hins fræga læknis Metzger,“ mælti Gran. „Eg er hvorki nein drottning né prins- essa,“ svaraði ungfrúin fjörlega, „og mér ætlaði að véitast full eríitt að hafa út nægi- legt fé til að reyna þessa baðlækningu.“ „Vitið þér, hvort Holgeir kemur heim í kvöld?“ spurði frúin. „Nei, hann var að dansa þegar eg fór.“ „Erindi rnitt er að spyrja yður, hivort þér viljið gera okkur systkinunum þá ánægju að borða hjá okkur á sunnudaginn kemur,“ tók nú Gran til máls. „Eg vona, að eg megi senda yður vagninn minn?“

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.