Nýjar kvöldvökur - 01.07.1951, Qupperneq 21

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1951, Qupperneq 21
-N. Kv. SVEINN SKYTTA 95 ar er þeir voru komnir hverir á sinn stað, gekk höfuðsmaðurinn að aðaldyrum kirkj- unnar og drap þrjú greinileg högg á dyr með korðaskefti sínu. Engu var svarað að innan, en dauft ljós, er áður hafði bjarmað gegnum blýrúðurnar litlu, hvarf nú skyndi- lega. Manheimer drap aftur á dyr, brá síðan munni að skráargatinu og kallaði hátt: „Ljúkið upp í nafni Svíakonungs!“ Hann ætlaði að endurtaka kall sitt og skipun og dró því djúpt andann, er hann lieyrði þunglamalegt fótatak nálgast dyrnar aðinnan. „Hver drepur svo síðla dags á kirkjudyr?“ var spurt fyrir innan djúpum rómi og dimmum. „Ljúkið upp!‘ ‘öskraði Manheimer, „þá munuð þér komast að raun um það.“ „Ég hef ekki á mér lykla að aðaldyrun- um,“ var svarað fyrir-innan. „En ef þér vilj- ið koma yfir að Beinahúsinu, mun ég ljúka þar upp fyrir yður.“ Höfuðsmaðurinn tautaði eitthvað ófagurt fyrir munni sér, um leið og hann veik lnirt frá kirkjudyrunum. En í sama vetfangi lagði maðurinn fyrir innan hönd sína á öxl garnla prestsins, sem stóð fölur og skjálfandi af ótta við hlið honum, og hvíslaði að hon- um: „Farið þér nú burt héðan, æruverðugi herra! Yðar hlutverki er nú lokið. Héðan af mun ég sjá um það, sem eftir er. Þeir hafa ekki sett vörð við dyrnar að altarisbaki.“ Presturinn kinkaði kolli og staulaðist á brott og studdist við stólabríkurnar. Er hann kom inn að kórnum, sneri hann sér við að manninum, er hafði fylgst með hon- um og haldið á skriðbyttu í liendi sér. Gamli presturinn lyfti hönd sinni og gerði þegj- andi krossmark yfir liöfði lians. Því næst sneri hann sér við og hvarf að altarisbaki, en þar voru dyr, er vissu út að garði prests- setursins, sem náði alveg upp að kirkju- veggnum. Það var þessa leið, sem Tange hafði laum- ast inn í kirkjuna og lilerað á samtal hinna um kvöldið. Nú var höfuðsmaðurinn kominn að Beinahúss-dyrunum og sendi burt her- manninn, sem þar stóð á verði, og skipaði honum að gæta aðaldyranna. Lykli var nú stungið í skrána að innan, og hurðin opnað- ist. Tange hafði lýst grafaranum þannig, að hann væri maður hár vexti, klæddur brúnni kápu. Á höfði bar hann þykka flókahúfu með járnspöngum að innan til að hlífa við höggi. „Hvað er yður á höndum, herra? spurði maðurinn stillilega og lét ljósbjarmann af skriðbyttu sinni falla á andlit höfuðsmanns- ins, en stóð sjálfur í skugganum. Manheim- er sneri sér við og skipaði hermanni þeim, er var í fylgd með honum, að gæta vel dyr- anna. Siðan gekk liann að manninum og mælti í hálfum hljóðum: „Ert þú grafari hér við kirkjuna?“ „Grafari og meðhjálpari, náðugi herra.“ „Manheimer glotti tortryggnislega. Hann hafði heyrt klið af vopnum undir kápu mannsins. „Ganga grafarar vopnaðir hér í bæ?“ „Já, stundum að næturlagi, er við eigum erindi út í kirkju.“ „Hvert var þá erindi þitt hingað um þetta leyti dags?“ „Ég var að raða sálmabókanúmerunum í töblurnar fyrir altarisgönguna á morgun." „Altarisgönguna!1 ‘endurtók Manheimer, því að orðið minnti liann einmitt á það, sem hann hafði áður óskað sér. „Veiztu, hvar altariskaleikurinn og oblátudósirnar eru geymdar?“ „Víst veit ég það.“ „Geturðu vísað mér þangað og sýnt mér þetta?“ „Ef þér óttist ekkert að fara með mér þangað.“ „Hvar er það þá?“ „Þegar Svíar gerðu hér innrás, fól prest-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.