Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 7
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 133 mínu, eða var mannleg náttúra í raun og veru svona auðvirðileg og afskapleg eins og þessi maður lýsti henni? Var þá enginn annar guð- dómur ti) en holdfýsnir? Voru menn og konur enn viðbjóðslegri og auðvirðilegri í girndum sínum en skynlausar skepnur? Jeg braut heilann um þetta og mig dreymdi um það. Jeg sökti mjer niður í *Laus Veneris*, »Faustinur og »Anactoria*, alt þangað til að jeg var koniin á þeirra skoðun og fanst hún sæmandi. Jeg drakk í mig hina óttalegu guðs- afneitun skáldsins og jeg las oft og mörgum smiium kvæðið: »Fyrir framan krossmarkið* þangað til jeg kunni það utan að — þangað til það hljómaði óaflátanlega fyrir eyrum mín- um og olli mjer jafndjúprar fyrirlitningar á Kristi og kenningum hans eins og vantrúaðir Gyðingar hafa til að bera. Nú er þetta einkis virði í mínum augnm — nú, þegar jeg er að steypa mjer út í eilífðarsortann og eilífðarþögn- ina, trúlaus, vonlaus og kærleikslaus, en mjer er spurn — vegna þeirra, sem finna hugsvöl- un í trúarbrögðunum — hvers vegna að jafn hræðilegt guðlast eins og »Fyrir framan kross- markið« skuli fá að breiðast út meðal svo- nefndra kristinna manna, án þess að nokkurt hnjóðsyrði heyrist frá þeim, sem þykjast hafa vit á að dæma um bókmentir. Jeg hefi vitað margan góðan rithöfund úthrópaðan að ósekju, margan ásakaðan um guðlast, þó verk hans hafi miðað í gagnstæða átt. En þessu kvæði er leyft að vinna tjón ámælislaust og höfundur þess hafinn upp til skýjanna, rjett eins og hann væri einhver velgerðamaður mannkynsins! Upp frá því, að jeg las þetta, var jeg vön að hugsa mjer Krist eins og »krossfest hræ*i ef jeg á annað borð hugsaði um hann. Jeg sá, að enginn hafði nokkru sinni ámælt Swin- burne fyrir þetta orðatilfæki og að það spihi alls ekki fyrir honum, er hann var gerður að »1 árviðarskáfdi« — að kirkjunnar þjónar höfðu ekki einu sinni haft djörfung í sjer eða látið sjer vera svo hughaldið um guðs dýrð, að þeir mótmseltu opinberlega þessari vanhelgun á hon- »m. Loksins komst jeg að þeirri niðurstöðu^ að Svvinburne hefði rjetta skoðun á þessu og jeg fylgdi fjöldanum og varði tímanum til að lesa slík og þvílík rit, sem fræddu mio um alt» er ilt og ósiðlegt var. Jeg glataði sál minni og sinnisró mín hvarf. — Swinburne hafði meðal annara stuðlað tii þess að gera sálarlíf mitt svo lastafult — þótt ekki væri það bein- línis í verkinu, að hugarfar mitt varð aleitrað og gersp:lt. Jeg hefi heyrt, að einhver lög sjeu til, sem mæli svo fyrir, að bækur, skaðlegs og ósiðlegs efnis, skuli gerðar upptækar, en ef þau lög eru til, þá hefir þeim verið slælega beitt gegn höfundi »Anactoria«. Honum er hleypt inn á mörg heimili, vegna þess að hann er skáld og spillir þar hugarfari margra, er áður voru hreinir og saklausir. Hvað sjálfa mig snertir, þá var mjer ekkert heilagt eftir það, að jeg hafði kynt mjer kvæði hans — jeg skoðaði karlmennina sem skepnur og fanst kvenfólkið ekki stórum betra — jeg trúði hvorki á æru, dygð nje sannleika og mjer stóð á sama um alt nema eitt, og það var sá fasti ásetningur minn, að gera hvað rnjer sjálfri sýndist í ástamálefnum. Rað gat hugsast, að jeg neyddist til að giftast einhvérjum, þvert á móti vilja mínum — svo nefnt hyggindagjaf- orð — en þrátt fyrir það ætlaði jeg þó ekki að afsala mjer ástinni — það er að segja, að jeg átti ekki við »hina hreinu« ást, heldur átti jeg við það, sem Swinburne og nokkrir aðrir frægir rithöfundar höfðu kent mjer að kalla ást. Jeg fór að brjóta heilann um það, hvar og hvenær jeg mundi hitta elskhuga minn og annars voru hugrenningar mínar slíkar um þetta Ieyti, að þær mundu hafa ofboðið öllum umvöndurum og vandlæturum og fengið hárin til að rísa á höfðum þeirra, en samt var jeg í heimsins augum fyrirmynd annara kvenna að siðlæti og kvenlegri háttprýði. Karlmeunirnir litu mig girndaraugum, en höfðu þó jafnframt beyg af mjer, því að jeg gaf þeim aldrei undir fótinn og hafði heldur aldrei hitt neinn þann þeirra á meðal, sem verður væri slíkrar ástar, sem jeg gat í tje Iátið. Peir líktust flestir tömd- um apaköttum, voru vel búnir og vel rakaðir,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.