Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 8

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 8
134 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. en simt með þessi flírubros og augnagjótur og klunnalegu tilburði, sem einkenna þessi loðnu skógarskrímsl, er jeg var að nefna. Jeg var fullra átján ára, þegar jeg þótti fullgóð og gild til þess að taka þátt í samkvæmislífinu — það er að segja, að þá var jeg leidd fyrir hirð- ina með allri þeirri heimskulegu og hjákátlegu viðhöfn, sem alment tíðkast við þau tækifæri. Áður var búið að segja mjer, að þessi >hirð- ganga« væri bráðnauðsynleg og afar mikils verð, að hún væri trygging fyrir stöðu manns í lífinu og einkum fyrir mannorðinu, því að drotningin liti ekki við neinum, sem ekki hefði óspilt og flekklaust mannorð og óaðfinnanlega hegðun. Ja, slíki og þvílíkt — slíkur hjegómi! — Jeg hló að þessu þá og enn get jeg ekki annað en biosað, þegar mjer verður hugsað til þess. Hefðarfrú sú, sem leiddi mig fyrir drotningu, átti ívo syni í lausaleik og hafði maður hennar engan grun um það og sjálf var hún ekkert einsdæmi við hirðina að þessu leyti, enda voru í þetta skifti sum þau hefðar- kvendi þarna saman komin, sem jafnvel jeg vildi ekki líla við seinna meir — s v o magn- að óorð fór af þeim. Að vísu ber það við stöku sinnum, að einhver framúrskarandi fríð- leikskona, sem allar hinar öfunda, er gerð að »skotspæni« vegna einhverrar smáhrösunar og verður þá hirðræk, en Iagsystur hennar, þær sem ekki hafa fegurðinni fyrir að fara og eru sjö og sjötíu sinnum syndugri gagnvart siðgæði og velsæmi, folla samt við hirðina — en að öðru leyti er næsta lítið tillit tekið til hugsun- arháttar og álits kvenna þeirra, sem leiddar eru fyrir drotningu. Það var gerður góður rómur að framkomu minni þennan dag og jeg »gerði mikla lukku*, sem menn segja. Sumar kynsyst- ur mínar gláptu á mig og slógu mjer gull- hamra, einkum þær, sem vegna aldurs og ófríðleika voru vaxnar upp úr allri afbrýði og mjer var sýnd megn fyrirlitning af þeim, sem fyrir afdurs sakir gátu kept við mig. Troðn- ingur var mikill fyrir framan hásætissalinn og sumt kvennfólkið var ekki sem orðprúðast. Beint fyrir framan mig var þertogafrú og sagði hún við vinkonu sína: »Sparkaðu — eins og jeg geri! Sparkaðu í sköflunginn á þeim eins fast og þú getur til þess að við komumst áfram!« Rað var »regluleg tignarkona*, sem þetta sagði og ekki ein af þessum »innfluttu« frá Ameríku og sams konar orðbragð heyrði jeg til margra í kringum mig. Loksins kom að þvi, að jeg gat hneigt mig frammi fyrir hásætinu og sá þá að drotningin var vingjarn- leg kona, hnigin að aldri og afar þreytuleg. Jeg kysti á hönd henni, er var jökulköld og sárvorkendi henni, þrátt fyrir hátignina. Eða hver skyldi óska sjer í hennar stöðu og vera til þess neydd, að veita án afláts viðtöku hverj- um skýjaglópahópnum á fætur öðrum? Jeg flýtti mjer að afljúka erindinu og fór svo heim til mín með hálfgerðri óbeit á þessari athöfn. Daginn eftir las jeg það í blöðunum, að þessi »byrjunarframganga« mín hafði gert mig að »fegurðardrotningu þessa tímabls*, eða með öðrum orðum, að nú væri jeg áreiðanlega til sölu. Varði jeg svo tímanum upp frá þessu til þess að skrautbúa mig, lála taka af mjer ljós- myndir og »sitja fyrir« nafnkendum málurum til þess að ganga í augun á giftingarólmum karlmönnum. Annars var öllum það kunnugt meðal heldra fólksins, að jeg mundi ekki föl nema fyrir ákveðna árlega upphæð — og sú upphæð var ofvaxin flestum þessum »spekú- löntum«. En ekki var það nein skemtivinna að vera altaf til sýnis á þessum giftingamark- aði! Jeg fyltist nú hatri og fyrirlitningu á þessari auðvirðilegu hræsni og fordild stjettar okkar og komst brátt að þeirri niðurstöðu, að peningarnir væru aðalhreyfiaflið í öllum við- gangi þegnfjelagsins, að heimsins drembnustu og nafnkendustu menn geta ofurvel unað sjer í húsi almúgamannsins, ef hann aðeins á nóga peninga til þess að veita þeim mat og skemt- anir. Jeg skal nefna til dæmis gamla og Ijóta kerlingarskrukku, sem jeg þekki. Meðan faðir hennar lifði, fjekk hún fimtíu aura á viku í vasapeninga, en svo dó faðir hennar og ljet henni eftir helming auðæfa sinna. Hinn helm- ingurinn gekk til lausaleikskrakka, sem hún

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.