Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 13

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Blaðsíða 13
NÝJAR KVÖLDVÖKÚR. 139 það verðar að minsta kosti ný og undarleg tilfinning! — — — — Móðir mín er hjer stödd — hjerna í her- berginu hjá mjer. Hún gengur um eirðarlaus og fálmar út höndunum og er að reyna að segja eitthvað. Hún lítur út eins og þegar hún lá á banasænginni, en öllu líflegri og til- finningameiri. Jeg hefi elt hana, en ekki getað náð henni — hún forðast mig. Jeg hefi kall- að: »Móðir mín, móðir mín!« en ekki hefir nokkurt orð komið af vörum hennar. Andlit hennar er svo afskræmt, að jeg kraup á knje rjett áðan og bað hana að víkja frá mjer. Pá hætli hún að ganga fram og aftur og brosti. En það bros — það var hræöilegt! Jeg held, að það hafi liðið yfir mig — því að jeg rakn- aði við liggjandi á gólfinu. Jeg fjekk sáran sting og hann kom mjer til að stökkva á fæt- ur — — og jeg be:t á vörina svo að blæddi, til þess að hljóða ekki upp yfir mig og gera hávaða í húsinu. Móðir mín stóð rjett hjá mjer, þegar þetta kast leið frá. Hún horfði á mig og virtist kenna í brjósti um mig, en ekki sagði hún nokkurt orð. Jeg skjögraði fram hjá henni og settist á þennan stól, sem jeg nú sit á — nú er jeg rólegri og get skil- ið, að þetta hefir ekki verið annað en heila- spuni — að jeg ímynda mjer bara, að hún sje hjer, enda þótt jeg viti, að hún er dauð- Seinustu mínúturnar hefi jeg óumræðilegar kvalir og verið dæmalaus vesalingur. Pessi inntaka var sannarlega banvæn. Kvalirnar eru óþolandi — hræðilegar! Jeg skelf og nötra og hver taug mín titrar. Þegar jeg lít á and- lit mitt í speglinum, sje jeg, að það er þegar breytt orðið. Pað er tekið og fölt — roðinn er horfinn af vörununi og augun óeðlilega stór. Bláir blettir eru kringum munninn og á gagnaugunum, og jeg finn, að blóðið streymir óvenjulega hratt um æðarnar. Nú mega kval- irnar verða svo heiftugar, sem verða vill — björg er engin framar og jeg hefi ásett mjer, að sitja hjer og aðgæta andlit mitt a!t þangað til að endalokin koma, »Sá slungni sláttumað- ur«, sem nefndur er Dauðinn, er eflaust ná- lægur, reiðubúinn að taka hár mitt eins og heyvisk í beinagrindarkrumlur sínar — vesa- lings fallega hárið mitt! Óököp þótti mjer vænt um þessa skínandi lokka — jeg burstaði þá og vafði þeim utn fingur mjer — og nú liggja þeir bráðutn í moldinni eins og hver önnur illgresishrúga! — — — — — — — Pað er eins og eldur læsi sig um höfuð mitt og allan likamann og jeg örmagnast af hita og þorsta. Jeg hefi slokað í mig köldu vatni, en það svalar mjer ekki. Sólin skín inn til mín eins og glóandi eldstó — jeg hefi reynt að rísa á fætur og draga gluggatjaldið fyrir, en jeg hefi ekki mátt til að standa upprjett. Birtan blindar mig. Silfurdósirnar á náttborð- inu glitra eins og sverðsoddar. Jeg verð að taka á öllum mínum kröftum, til þ.ss að geta haldið áfram að skrifa — alt hringsnýst fyrir augum mjer og mjer finst jeg ætli að kafna. Rjett áðan hjelt jeg, að jeg væri að deyja. Jeg engd;st sundur og saman af óþolandi kvöl- um og það var að mjer komið að kalla á hjálp, og jeg hefði Iíka gert það, ef jeg bara hefði getað. £n jeg get aðeins hvíslað og jeg tauta mitt eigið nafn með sjálfri mjer: »Síbyl, Síbyl!« Móðir mín stendur hjá mjer og er auðsjáanlega að bíða eftir mjer. Mjer heyrðist hún segja áðan: >Komdu, Sibyl! Komdu til elskhuga þíns!« Nú er alt kyrt og hljótt og jeg finn ekkert til, en jeg sje andlii mitt í speglinum og veit, að dauðinn hefir sett innsigli sitt á það. Bráðum er alt búið — nokkur andar- tök enn — og svo fæ jeg friðinn. Jeg er fegin því — því að jeg hefi aldrei getað sætt mig við heiminn. — Jeg er viss um, að ef við vissum fyrir fæðinguna, hvernig lífið er í raun og veru, þá þætti okkur ekki tilvinnandi að lifa! — — — — — — — — — — — — Ógurleg hræðsla hefir gripið mig skyndilega. Ef dauðinn væri nú ekki eins og vísindamenn- irnir fullyrða — ef hann væri nýlt líl! Ætli jeg sje að missa bæði vit og kjark — eða hvaða skelfileg hugboð eru þelta, sem ásækja nng? 18*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.