Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.09.1926, Síða 16
142 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. mannanna og sjaldgæfari en perla í sorphaug. — Jeg átti það peningum mínum að þakka, að alt gekk sljett og felt með þetta sjálfsmorð konu minnar. Með tilliti til þess, að hún var greifadóttir, þá vottuðu tveir læknar, sem jeg borgaði allríflega, að dauða hennar hefði borið að »vegna slysni«, rneð því að hún hefði feng- ið of stóra inntöku af sterku svefnmeðali. Rsð var heppilegasta skýringin og sómdi sjer best. Blöðin fengu nú tækifæri til að skrifa um það, hve svefnmeðul væru varasöm, en Tom, D;ck og Harry settu greinar með fullu nafni í blöð sín um hættuna við notkun svefnlyfja. Kröfum laganna, velsæmisins og kirkjunnar var að öllu leyti fullnægt — allir fengu sína borgun (sem var aðalatriðið) og jeg held, að allir hafi ver- ið ánægðir. Jarðarförin varð sjerstakt ánægju- efni fyrir þá, sem sáu um útförina, því að hún var afar kostnaðarsöm og hin prýðilegasta. Blómsalarnir stórgræddu á öllum krönsunum og krossmörkunum og sást ekki í kistuna fyrir blómskrúði, þegar hún var borin til grafarinn- ar. En af öllum þeim skeytum og borðum, sem voru festir við liljur og rósir, sem sýni- legt tákn sakleysis og fegurðar hins eitraða líks, með áletruðu »með kærri kveðju«, »farðu vel, ljúfa«, og »ekki horfin, heldur farin á undan«, var ekki eitt einasta, sem var sent af einlægni, ekki eitt einasta, sem væri vottur einlægrar hrygðar. Elton lávarður kom fram eins og föður sæmdi, sem yfirbugaður er af harmi og þó held jeg ekki, að honum hafi fallið dauði dóttur sinnar þungt, því að nú var eini þröskuldurinn úr vegi fyrir giftingu hans og Díönu Chesney. Hins vegar held jeg, að Díana hafi verið hrygg, að svo miklu leyti sem ljettúðaifull amerísk stúlka getur hrygst af nokkrum sköpuðum hlut. Kanske það sje rjettara að orði kveðið, að hún hafi orðið skelkuð við hið skyndilega fráfall Síbyl, en jeg er ekki viss um, að hún hafi syrgt hana. Rað er mesti munur á verulegri og einlægri sorg og einhverjum taugaveiklunarköstum. Ung- frú Ctiarlotta Fitzroy tók dánarfregn frænku sinnar með frábærri stillingu og jafnaðargeði, sem oft einkennir guðhræddar, ógiftar konur, þegar þær eru farnar að reskjast. Hún lagði frá sjer prjónana og sagði: »Verði guðs vilji!« og gerði svo boð eftir sálusorgara sínum. Hann kom og dvaldi hjá henni nokkrar klukku- stundir og drakk sterkt te — og morguninn eftir var hún til altaris hjá honum. Að því búnu lifði ungfrú Fitzroy kyrlátu og lastvöru lífi eins og áður. Hún var dapurleg á svip, eins og hún átti vanda til, en að öðru leyti bar hún harm sinn í hljóði. Sjálfsagt var jeg eftirtektaverðasta persónan á sýningarsviðinu, sem hinn syrgjandi miljónari. Að ytra áliti var ekkert við mig að athuga, en hið innra með sjálfum mjer fanst mjer jeg vera miklu meiri leikari en Henry Irving. Lúcíó var ekki við- staddur jarðarförina. Hann sendi mjer nokkur samhrygðar-orð frá höfuðborginni og gaf um leið í skyn, að hann væri viss um, að jeg mundi skilja ástæðuna til þess, að hann kæmi ekki sjálfur. Jeg skildi hana auðvitað og kunni lfka að meta þá virðingu, sem jeg hjelt að hann væri að sýna mjer og tilfinningum mín- um. En þótt ótrúlegt megi virðast, þá hafði jeg aldrei þráð nærveru hans jafnmikið og þá! Jarðarför hinnar friðu og fölsku konu minnar var prýðileg í alla staði. Fjörugir eldishestar gengu fyrir skrautvögnunum í langri halarófu eftir Warwickshire trjágöngunum og til hinnar gömlu og æruverðu kirkju, þar sem prestur- inn og meðhjálparar hans tóku við blóm- skrýddri kistunni í nýþvegnum rykkilínum og ljetu hana síga ofan í jörðina með venjulegum serimóníum. Frjettaritarar blaðanna voru þar viðstaddir. Þeir lýstu ekki aðeins jarðarförinni eins og hún fór e k k i fram, heldur skrifuðu líka langar og ítarlegar lýsingar á kirkjunni, algerlega ólíkar henni. Jeg get þessa aðeins til að sýna fram á, að alt fór fram eftir nýjustu tísku! Þegar athöfninni var lokið, fór líkfylgd- in aftur til Willowsmere og settist þar að snæðingi og man jeg vel eftir því, að Elton lávarður sagði mjer þá nýja hneyklissögu yfir borðum. Líkmönnunum var veittur beini í borðstofu vinnufólksins og yfir höfuð varð frá-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.