Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Blaðsíða 15
N. Kv. ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR 61 Gunnar Guðmundsson os: Guðrúnu Teits- o dóttur, móður hans, á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Mæðginin seldu og gáfu síra Jóni 40 hundruð í jörðinni Kollabæ í Fljótshlíð og 2 hundruð betur gegn því, að Guðrún fengi ævinlegt framfæri hjá síra Jóni og erfingjum hans, og því, að síra Jón gyldi Gunnari 5 hundruð í þarflegum pen- ingum.77) Víst er, að erfingjar síra Jóns frá Haga áttu Kollabæ og því er eflaust hér um hann að ræða. Það er líklega síra Jón frá Haga, sem fer jörðina Vindás í Landeyjum til fullrar eignar hjá Magnúsi á Krossi í Landeyjum Magnússyni fyrir þá peninga, sem Magnús varð Grími Jónssyni og síra Jóni Gíslasyni jáza. Gerningurinn fór fram á Krossi 25. maí árið I500.78) Ti! er skrá um eignir Breiðabólstaðar- kirkju í Fljótshlíð þegar síra Ögmundur Pálsson tók við af síra Jóni Gíslasyni, og niun það hafa verið um 1504.70) Eftir því hefur síra Jón fyrst haldið Breiðabólsstað, en síðan tekið Holt. Síra Jón Gíslason er meðal dómsmanna á hreiðabólsstað í Fljótshlíð 11. marz 1510,80) °g enn er prestur með því nafni vottur 1 Skálholti 14. apríl 1519.81) 30. septem- ber 1521 er síra Jón Gíslason, prófastur, meðal dómsmanna á Breiðabólsstað f Fljóts- hlíð.82) Síra Jón Gíslason er meðal votta að skiptum milli Hólmfríðar Erlendsdóttur og barna hennar og er það eflaust síra Jón í Flolti.83) Tveir Jónar Gíslasynir prestar eru í prestadómi á Reykjum á Skeiðum 16. febr. 1523, og er annar þeirra sennilega Slra Jón í Holti.84) Það er e. t. v. hann, sem 77) D. I. VII, bls. 316. 78) D. I. VII, bls. 483-484. 79) D. I. VII, bls. 735-736. 80) D. I. VIII, bls. 302. 81) D. I. VIII, bls. 681. 82) D. I. VIII, bls. 829. 83) D. I. IX, bls. 88. 84) D. I. IX, bls. 132. er í dómi á Alþingi 1524.85) Það er eflaust hann, sem er gerningsvottur að því í Skál- holti 17. apríl 1526, að Ögmundur biskup Pálsson fékk Erlingi Gíslasyni, bróður síra Jóns, Kross og Bryggjur í Landeyjum fyrir Bíldudal og Dufansdal á Vestfjörðum.80) Síra Jón Gíslason er meðal dómsmanna í Lambey 12. sept. 1526, og er það senni- lega síra Jón í Holti.87) í bréfabók Ögmundar biskups hefur ver- ið ódagsett upplýsing um það, að biskup hafi selt síra Jóni Gíslasyni jarðirnar Aust- asta-Skála og Miðskála undir Eyjafjöllum fyrir Gýgjarhól, Keldnaholt og Brú í Bisk- upstungum. Þetta stendur meðal skjala frá 1526 í bréfabókinni og gæti því verið frá því ári.88) 22. janúar 1527 er síra Jón Gísla- son dómsmaður á Kirkjulæk í Fljósthlíð.8°) 7. marz 1530 gengur á Reykjum á Skeið- um dómur kvaddur af Ögmundi biskupi um kæru hans til síra Jóns Gíslasonar vegna kirkjubruna í Holti undir Eyjafjöllum. Biskup segir, að honum hafi verið flutt, að síra Jón hafi sjálfur farið með eld þann dag, sem kirkjan brann í Holti. Enn kveður biskup síra Jón ekki hafa haft þá hluti, sem honum bæri að hafa og lögin bjóða til síns kenniskapar, svo sem ,,handbók og crisma, brefiere og bækur et cetera.“ Síra Jón kvaðst hvorki hafa borið eld né farið með ljós eður látið fara fram þann dag, sem kirkjan í Holti brann, og enginn hans heimamaður hefði þangað eld borið á þeim morgni. Hann var dæmdur til að sverja, að Holtskirkja hefði ekki brunnið af hans völdum, viti né vilja. Síra Jón sór og sex prestar með honum. Hann var þó dæmdur til að borga kirkjuna og ornamentum henn- ar að helmingi „af því að oss leizt sem kirkj- an mundi vissulega brunnið hafa af nokkr- um vofeiflegum þar heima eldi á staðnum, 85) D. I. IX, bls. 224. 86) D. I. IX, bls. 344-345. 87) D. I. IX, bls. 377. 88) D. I. IX, bls. 392. 89) D. I. IX, bls. 399.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.