Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Blaðsíða 49

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Blaðsíða 49
N. Kv. DALURINN OG ÞORPIÐ 95 Næsta gata lá upp að trjágarði, laufkrónurn- ar voru miklar, þó trén stæðu þétt. Milli þeirra sá í rauð þök, önnur dökk-græn lengra burtu og bjartur vorhiminn yfir. Viðurinn var nýr og hvítur í sárið, ívið grænleitur, safamikill og börkurinn mjúk- ur. Það lagði angan af viðnum, einkum þeim, er verið var að fletta í skemmunni. Sumir bútarnir voru votir, höfðu auðsjáan- lega lent í sjónum. Þeir höfðu tímann fyrir sér að þorna í sólskininu. Pilturinn spurði: — Hefurðu selt mikið af þessu? — Ég hef selt minnst af því, sem búið er að selja. Ég hef ekki nema kvöldin og er þá °ft í öðru, sagði hún. Hann fékk henni aurana. Það var of mik- Jð. Hún ætlaði að gefa til baka. — Æ hafðu þetta bara, sagði hann. — Við erum ekki að selja þetta til að græða á því, sagði hún ákveðin. Við viljum bara fá sem flesta til að lesa það. — Jæja þá, sagði pilturinn. Sama er mér. Hann fékk aurana aftur, og horfði á hendur hennar um leið og hann tók við þeim. Hún hafði enga hanzka á höndunum; hann langaði til að taka þær milli sinna og finna ylinn af þeim. Nú var hún ekki í brúnu kápunni, þessi var Ijósari með stór- nm möskvum. Stúlkan hneppti henni ekki að sér, því kvöldið var bjart og hlýtt. Hún var í hvítleitu pilsi og ljósrauðri peysu og skórnir voru Ijósir, breiðir yfir tærnar, með ^águm hælum. Hún gekk alltaf á skóm með lágum hælum. ^jön sagði: ~~ I’að verður líklega nógur Iiiti í kosn- lngunum núna. Og ekki vantar það, að nóg er gefið út af blöðunum. ~~ Já, það er nóg af þeim, sagði stúlkan. Ég þakka þér fyrir, bætti hún við, og ^laði að fara, en þá mættust augu þeirra, eins og af hendingu. Nú sá hann hvernig þau voru lit. En Jiann var ekki að hugsa um það núna sérstaklega, heldur um líkama hennar allan, sterka, þétta handleggina; hálsinn, mjaðmirnar, hörundið, sem var mjúkt og svalt. Kvöldinu áður hafði félagi hans kysst stúlku þarna bak við viðarhlað- ann og út á götunni gengu tvö sem leiddust. Hvað varðaði hann um pólitík, þingmanns- efni og bréf frá uppgjafa prestum, meðan blóð hans var svo heitt og ákaft. Hann sagði: — Þú kemur út með mér í kvöld, þegar þú ert búin að selja þessi rit. Við getum gengið inn í hlíð. Ég þarf að tala við þig. Honum hafði aukizt hugrekki á sjónum. Félagar hans voru farnir að impra á því við hann, að fara á námskeið með haustinu og ná sér að minnsta kosti í pungaprófið. Þú ert svo bráðþroska, sögðu þeir. — Ég hef engan tíma í kvöld, sagði stúlk- an blátt áfram. Kalli litli er lasinn og mamma situr hjá honum. Það er mamma sem hefur unnið í allan dag og er orðin þreytt. Góða nótt. Hann gat ekki hlaupið á eftir lienni og neytt hana til að taka orð sín aftur. Það var eins og fyrri daginn, hún fór sínu fram. Pilturinn stóð einn eftir á götunni, hann hafði ekki einu sinni kosningarrétt, hugur hans var í uppnámi, því honum fannst hann hafa beðið lægra hlut. Hann skyldi sýna lienni hvort þeirra væri sterkara, þó síðar yrði. Nú seldi hún næsta manni bækling- inn og sá klappaði henni vingjarnlega á öxl- ina. Það var líklega einn af þeirn, sem var á móti þjóðskipu 1 aginu. Björn lézt vera að lesa í bæklingnum, en í rauninni var hann að horfa á eftir stúlkunni. í þessu komu tveir menn út úr bjórkránni; bakarinn seldi áfengt öl, svona rétt fyrir kosningar. Það voru heldri menn, með snyrtar hendur, ný- komnir af rakarastofu. Annar var stórkaup-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.