Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Side 33

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1961, Side 33
N. Kv. GAMALÍELS ÞÁTTUR 79 "■iiiiiiiiiiiiniimuiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii n» Þura Árnadóttir frd Garði, höf- undur þessarar greinar, varð sjö- tug siðastliðinn vetur. NÝJAR KVÖLDVÖKUR nota þetta tæki- freri að óska henni hamingju og þakka henni þann skerf, sem hún hefur lagt fram til þjóðlegrar, is- lenzkrar menningar. 1 hana sína síðustu vísu með fallegri settlet- Ul'sskrift: Hef ég það í hug um sinn, harðnar mæðu strengur, að Gullinkambi Gollnis minn gali nú ekki lengur. hr hann hefur lokið heimabúnaði, tekur hann gömlu Vísnabókina sína og stingur henni í vasa sinn. Síðan minnist hann við heimilisfólkið, sem er allmargt, þar á meðal 15 börn tveggja sona hans. Svo stígur hann á bak hesti og rennir augunum yfir hóla og lautir austur yfir flóann, tekur ofan hatt- inn, les ferðabænina og býður góðar stund- ir og biður guð að blessa heimilisfólk sitt og afkomendur. Sonur hans fylgir honum; þeir ríða suður ásana móti vorþeynum. Hann dvelur hjá gömlu vinkonu sinni nokkra daga, og tala um gamla tíð og fornan fróðleik, og hann gefur henni gömlu Vísnabókina til minn- ingar um vináttu þeirra. Á páskadaginn er hann sjúkur, en ekki þungt haldinn. Guð- björg húsfreyja fer til kirkju; hann biður hana að biðja prestinn að minnast sín á stólnum. Eftir að Guðbjörg kemur frá kirkjunni, spyr hann hana, hvort fólk hafi verið þar frá sínu heimili. Hún segir, að Björg tengdadóttir hans hafi verið þar og beðið að heilsa honum. „Hún hefur verið glöð eins og ævinlega," segir hann. „Minnt- ist presturinn mín af stólnum?“ spyr hann enn fremur. „Það gerði hann vel,“ sagði hún. Eftir litla stund varð henni litið á lrvílu gamla mannsins og sá, að hann dró síðustu andtökin. Gamli maðurinn hvíldi þarna stórleitur, bjartur og mikilúðlegur, eins og hann segði: „Sáttur er ég við guð og menn.“ Þessi atburður varð 4. apríl 1858, var þá Gamalíel 81 árs. Helga Einarsdóttir dó hjá Stefáni syni sínum í Haganesi 26. júní 1860, 78 ára. Hún var jörðuð við hlið manns síns í gamla kirkjugarðinum á Skútustöðum, og fóru í gröf með henni tvö af fjórum börnum Stef- áns sonar hennar, sem dóu með stuttu millibili úr barnaveiki. Helga þótti hin mætasta kona, góð og vel gerð. Halidóra Kristjánsdóttir í Álfta- gerði, sonardóttir Gamalíels og Helgu, mundi örnmu sína og liafði verið við jarð- arför hennar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.