Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Side 36
var í burtu frá barkskipinu, hafði það rekið um
hálfa sjómílu nær landi, og voru nú aðeins þrír
fjórðu partar úr sjómílu eftir upp í æðandi brimið
við klettótta ströndina.
Skipstjórinn á Eagle sá þegar að skjótra að-
gerða var þörf, ef bjarga ætti skipinu. Lagði
hann því skipi sínu eins nálægt Craigburn og
hann þorði, og var gerð tilraun til að kasta kast-
línu yfir í barkskipið. Línan komst ekki alla leið,
en flaut ofan á sjónum við framendann á Craig-
burn, og tókst mönnum þaðan að ná henni.
Blanchard hafnsögumaður var meðal mannanna
fram á. Tók hann kastlínuna í skyndi og hnýtti
henni við dráttartaug og hrópaði til mannanna á
dráttarbátnum að draga línuna til sín, og byrjuðu
þeir á því.
I þessum svifum ruddist Kerr skipstjóri fram
á skipið.
„Hættið að gefa út tógið,“ skipaði hann, og því
næst hrópaði hann til dráttarbátsins: „Hvað
kostar að draga skipið héðan?“
Skipstjóri dráttarbátsins varð svo undrandi
yfir þessari spurningu undir þessum kringum-
stæðum, að hann varð orðlaus um stund. Hér
var um beina björgun að ræða og það var venjan
að dómstólamir fjölluðu um upphæð björgunar-
launanna. Kerr skipstjóri var hins vegar fastá-
kveðinn í að semja um þau fyrirfram.
„Hvað kostar það?“ spurði hann aftur um leið
og hann tók um dráttartaugina til þess að hindra
það, að hún rynni lengra út.
Nú stóð ekki á svari skipstjóra dráttarbátsins.
„Fimm hundruð sterlingspund,“ svaraði hann.
„Ég borga 50 sterlingspund,“ hrópaði Kerr.
Skipstjóri dráttarbátsins hristi höfuðið, og Kerr
hækkaði tilboð sitt upp í 100 sterlingspund. Einnig
því tiltölulega lága boði var hafnað.
„Við skulum bíða með að semja um þetta, þar
til við komum í land,“ hrópaði skipstjóri drátt-
arbátsins. „Hefjumst nú handa, gefið út dráttar-
taugina og svo festum við henni um borð hjá
okkur.“
„Fjandinn hafi það, því geng ég ekki að,“
hreytti Kerr út úr sér með raddblæ og látbragði,
sem olli skipverjum og hafnsögumanni kvíða.
„Ef þú vilt ekki draga okkur burtu fyrir 100
sterlingspund, þá skaltu sleppa dráttartauginni
og hypja þig burtu.“
Því næst færði hann sig yfir í hitt borðið og
tók að prútta um björgunarlaunin við skipstjór-
ann á Rescue. En það fór á sömu leið, hann hafn-
aði tilboðinu.
Til málsbóta fyrir skipstjóra dráttarbátanna er
rétt að taka það fram, að hefðu þeir samþykkt
tilboð Kerrs, hefðu þeir um leið afsalað sér frek-
ari aðgerðum dómstólanna í málinu. Tilboðið
16 SJÓMANNADAGSBUAÐIÐ