Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Blaðsíða 24

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1945, Blaðsíða 24
Ásgeir Sigurðsson: Yegamót Allir, sem mi'kið ferðast, hafa rekið sig á, að víða liggja vegamót. Eigi er ávalt jafn auðvelt að ákveða hvert vegurinn liggur eða hver sé hinn rétti vegur. Sérstaklega gætir villugimi á sMkum tímum, er vér nú lifum á, þegar öll vega- merki eru ýmist numin á brott eða þeim snúið í aðrar áttir en þær réttu. En þjóð, sem er í vissum skilningi að fæðast á ný, er mikil nauðsyn þess, að rata hinn rétta veg, því að fyrstu sporin verða oft úrslitasporin. Hvert það spor, sem stigið er nú, við upphaf uppbygg- ingarstarfsins, verður að vera „gengið til góðs götuna fram eftir veg.“ íslenzka þjóðin er nú stödd á vegamótum. Hún hefur heimt frelsi sitt aftur eftir margra alda áþján fyrri tíma. Þótt sambúð hinna síðari tíma við hina erlendu þjóð hafi verið mjög sómasam- leg, þá var það ekki í samræmi við íslenzkan rétt og þurfti því að leysast. Nú geisar hinn grimmilegasti ófriður, sem háður hefur verið í sögu þjóðanna. Hann er auk þess háður nú næstum við bæjardymar hjá okkur. Við verðum fyrir slysum, tilfinnanlegum mjög, fyrir fámenna þjóð. Daglega eru stórviðburðir að gerast, þótt ekki nema fæstir þeirra snerti oss tilfinnanlega, sem betur fer. En nú eru tímar mikilla og skjótra breytinga, og þjóð, sem er svo fámenn, sem raun ber vitni um oss íslendinga, er mikil nauðsyn að taka réttar ákvarðanir og átta sig í tíma á því, sem er að gerast, svo að henni verði kleift, þar sem vegamerkin hafa verið numin á brott, að rata hina réttu leið, leiðina til samstarfs og öryggis fyrir hið nýstofnaða lýðveldi. Við viturn það, að innanlands hefur verið mesta skálmöld, því segja má að barizt hafi verið með öllum hugsanlegum vopnum — Ijótt en satt. Hins vegar er það mörgum orðið ljóst, að svo má eigi henda þjóð vora, að hún eyði kröftum sínum í innanlandsdeilur. Þegar allt bendir til þess, að hver sú þjóð, sem ekki er sjálfri sér samkvæm, verði þurrkuð út sem sjálfstæð og frjáLs heild. Til þess að von sé um sigur í hinni raunveru- legu frelsisbaráttu, sem nú er að hefjast, og hlýtur að ná hámarki sínu við lok styrjaldarinnar, verð- ur þjóðin að vera samhent inn á við og sterk út á við. Saga undanfarinna ára er ljós mynd af því, hvílíkar tafir og töp geta hlotizt af sundrungu, og það, sem áunnizt hefur, Ijóst dæmi þess, hversu m-iklu meira mætti til vegar koma með samstarfi og einbeittum vilja. Það, sem hefur verið sagt um þjóðarheildina, á að sjálfsögðu einnig við um innbyrðis samheldni stétta innan þjóðfélagsins. Nú dregur að leikslokum, styttist nú óðum sá tími, sem hinn grimmi djöfladans geisar á norð- urhjara heims. Nú fara þjóðirnar bráðlega að hugsa til eftirstríðsáranna. Hvar stöndum við þá? Er þjóðin svo samhent og einhuga sem skyldi, eða skal enn fliotið sofandi og við illa drauma að feigðarósi? Er ekki lýðveldisstofnunin það ljós og sá afl- gjafi, sem lýst getur þjóðinni út úr ógöngum og villu sundrungarinnar og leyst úr læðingi þá krafta, sem beztir eru og með henni búa. Verk- efni eru mörg, sem bíða úrlausnar. Hvað hefur t. d. verið gert til þess að kynna fyrir þjóðum þeim, er vér höfum skipti við, það framlag, er íslenzka þjóðin hefur lagt til lífsfram- færis bandamaxma, og þá sérstaklega skerf sjó- mannanna íslenzku? Væri ekki nú einmitt tími kominn til þess, en ekki seinna, að láta fara fram óhlutdræga rannsókn í því efni? Hafa menn al- mennt bæði hérlendis og þeir, sem ráða erlendis meðal bandamanna, gert sér það ljóst, hverju þessi fámenna þjóð hefur áorkað í þessu efni á stríðstímanum og hver afhroð hún hefur goldið miðað við mannfjölda og skipákost af þessum orsökum? Er ekki einmitt nú verið að tala um hverjir séu haefir og hverjir ekki hæfir til þess að taka þátt í viðræðum um skipan heimsmál- anna eftir stríðið? Er það nokkur mælikvarði á hæfni þjóðanna til þessa, hve stórar eða mann- margar þær eru? Skiptir það ek'ki mestu máli, hvemig þjóðin hefur staðið sig? Hvað hefur hún lagt á metaskálarnar? Vér minnumst þess, að oss var með samning- um heitið skipum og vélum eftir þörfum. Við vitum einnig, að ennþá er slfkt ekki komið til 4 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.