Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 31

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 31
vaktir, lögðu þeir af frjálsum vilja á sig ærnar vökur. G.G.H. Ég stóð við stýrið á Maríu, og rétt hjá mér stóð Markús stýrimaður. Þessi túr hafði ekki orðið langur. Klukkan átta i kvöld voru liðnir réttir sjö sólarhringar, síðan við létt- um akkerum á Sandvíkinni, búnir að taka þar vatn, ís og nýfrysta haf- síld, og sigldum út Djúpafjörðinn í frískum kalda af vestri. Hann hafði svo gengið úr vestrinu, þegar við vorum komnir á vænlega fiskislóð, og síðan hafði verið ýmist logn eða hafnorðan andvari, áreiðanlega ein- ungis kjaravindur á firðina, fjalla- gola og hafræna. Og fiskurinn hafði verið beinlínis óður. Við höfðum verið á svo til sama svæði — aðeins þokazt vestur á bóginn — í sex daga, og á þeim tíma fyllt skipið og vorum orðnir saltlausir — ekki nema sáldr- að í allra efstu lögin. I lestinni voru rúm átta þúsund, á að gizka 50 skippund. Við vorum aðeins tíu, sem höfðum eingöngu stundað færið, skipstjórinn lítið getað sinnt sínu, því að hann hafði lagt mikla vinnu í að færa til fisk og salt í lestinni, svo að við hinir þyrftum sem minnst að tefjast frá fiskidrættinum, og Bald- vin kokkur var aldrei fastur við færið — ekki einu sinni þá tíma, sem hann hafði ekki kokkmennskunni að sinna. Mér taldist svo til, að við há- setarnir og Mórauði kallinn ættum að eiga að meðaltali 800 fiska í lest, og ég var talsvert upp með mér af því, að ég hafði skilað skipstjóranum 800 gellum. Upp með þér að vera í meðallagi! segið þið nú kannski undrandi. Já, ég var hreykinn, því ég var sá fjórði ofan frá. Þeir voru sem sé tveir, vökuskarfarnir, ekki bara Bjarni litlan einn — eins og í fyrra, heldur líka Fiski-Gvendur, og fyrir honum varð Litlan að lúta í lægra haldi og það svo að um mun- aði. Gvendur hafði dregið 1208 fiska í túrnum, en Bjarni litlan ekki nema 990. Þriðji maður var Jón á Hrynj- anda; hann var 48 fiskum hærri en ég. En lægstur var að þessu sinni Léttasóttar-Matthías. Hann skilaði bara 580 gellum. Hann var orðinn úthaldslítill að vaka við fiskidrátt og aðgerð, varð fljótlega eins og eitt- hvert slytti. „Sjá hann!“ sagði ég við Litla manninn í gær. „Það má heita lán, að hann stígi ekki í skeggið á sér.“ Og Markús svaraði: „Hann hefur eytt orkunni í ann- að, maður sá, hefur slitið út tveimur konum og bætti við sig aukagetu, þegar hann var ordinn sextugur. Ajæja, eitthvað verda menn að lifa fyrir.“ Matthíasi gekk annars bezt að draga í tregfiski, var furðu drjúgur, þegar var slítingur. En ég komst aldrei í meðaldrátt nema fiskur væri nokkuð ör. Þá var ég ólgandi af fjöri og kappi — ætlaði hreint að ærast, ef ég lenti i færaflækju, var þá tannhvass og jafnvel illyrtur og varla að mér stykki bros. Eg var þolinn að vaka, ef ég gætti þess að snæða nógu oft, en lítið í einu — og fleygja mér út af á hverjum sólar- hring, þótt ekki væri nema mjög skamma stund. I verulegu tregfiski gekk mér verst allra á skipinu, hékk þá áhugalaus í færinu og lét hugann sveima — eða var fullur af glensi og fann upp á ýmsum spegálum. En fiskurinn virðist vera stærilátur, lít- ur vart við færum þeirra, sem meta annað meira en hann. Það var helzt, að lúðutetur slæddist að önglinum mínum, — ég hafði oftast fengið fleiri sprökur en nokkur annar, og þetta hafði vitaskuld leitt af sér tal um kvenfólk og kvensemi. Mórauði kallinn sagði, að það mætti vera al- kunna, að sumt kvenfólk væri með því ótugtarmarkinu brennt að sækj- ast helzt eftir þeim, sem sýndu því hæfilegt tómlæti, og þó hann væri ekki gamall, hann Hvítur litli, þá hefi maður sitthvað af honum heyrt, sama háttalagið þar og við færið, hangs og sprell löngum og löngum — og svo aftur þessir líka litlu kippir. Ég hafði lítið sofið undanfarið, hafði aðeins sofnað sitjandi á bekk í lúkaranum, eftir að aðgerð var lokið og hafði ekki verið í koju neina hálfa vakt, hvað þá heila, síðan við kom- um á miðin. Ég fann til þyngsla í öllum skrokknum — og ekki var ólíkt því, að eitthvert þykkni væri yfir höfðinu á mér. En samt var ég í essinu mínu. Nú hafði allt gengið eins og mér hugnaðist bezt, og veðr- ið var iðilgott, gat verið, að við yrð- um lengi að komast inn og út og ég fengi tíma til að lesa og kannski setja saman vísur. Ég leit til lofts, lét augun hvarfla fram og aftur um himinhvolfið. Himinninn var heið- ur, nema hvað meinleysislegir skýjahnoðrar sáust í háloftinu og gagnsæ góðviðrismóða í vestrinu. Fram undan til hlés gat að líta Sel- nesið, en til kuls var ekkert að sjá nema fagurbláan hafflöt. Eg starði á Selnesið, grábrún hamragirðingefst, svo sem hefluð að ofan, ekki neins staðar tó. Síðan ljósbrúnir aurar með rauðleitum teinum hér og þar — og á stöku stað fölgrænir dreglar. Neðar gráar skriður með grænum bringum á milli. Því næst allbrattir og háir bakkar, þar sem skiptust á dimmgrænir rindar, rauðbrúnir aurar og dökkir klettar, sem á stöku stað sköguðu allt í sjó fram. Á milli forvaðanna ljósgrá fjara, hingað og þangað ræmur af glógulum sandi. Enn sú ládeyða, hvergi hvít brydd- ing vio fjörurnar! Ég leit á Litla manninn. Það var heldur en ekki snúið upp á ásjónuna á honum núna, — nú mundi hann vera eitthvað að þenkja, eins og hann gjarnan orðaði það. Allt í einu renndi hann til mín ámáttlegu hornauga, glöðnuðu ekki í honum brúnaljósin við vökurnar. „Það skyldi maður ætla, að hann Fiski-Gvendur lúrdi frekar vært núna,“ sagði hann og velti munntó- bakstölu á tungunni. ,Já, skyldi það ekki. Hann ber- háttaði, ekki nokkur spjör eftir á hans skrokk, og skreið svo inn í koj- una, svona rétt hjá kabýsunni — og þetta heitt í veðri. Honum var nú SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.