Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 43

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 43
DR. HANS OTTO MERTINS (Sjávardeild þýzku veðurstofunnar) Um ísmyndun á fiskiskipum vegna ágjafar Eitt það válegasta er mætir skip- um og skipshöfnum í vetrarveðri er ísingin. Tugi, jafnvel hundruð tonna geta á skömmum tíma hlaðist á stór skip með skelfilegum afleið- ingum. Sjómenn verða líklega seint minntir nógu rækilega. Þetta er þó síður en svo auðveldur vandi við að bregðast. Á skipstjóri að láta frost hindra siglingu skipsins, á hann að láta slag standa, eða ber honum við fyrstu teikn að breyta stefnu, áður en ís hleðst að marki á skip hans. Þær þjóðir er byggja norðurhluta heims, siglingaþjóðirnar eru fyrir löngu byrjaðar að bregðast við vandanum tæknilega. Veðurstofan á íslandi varar t.d. við ísingarhættu og sama er að finna í veðurspám margra þjóða, t.d. á Eystrasalti. Þá eru menn að gera tilraunir með ís- varnartæki, en þau koma að góðum notum t.d. á flugvélum, þótt vand- inn hafi að sjálfsögðu minnkað í fluginu með tilkomu þotuflugsins, þar sem flugfarið þarf aðeins að vera fáeinar sekúndur í ísingarbeltinu. Hér á landi hefur einnig margt verið gert með hliðsjón af ísingar- hættunni. T.d. eru stóru varðskipin ÆGIR og TÝR bæði einfölduð mikið ofanþilja til þess að hindra yfirþunga af völdum ísingar. Einnig er farið að reikna fyrirfram ísingar- þunga þann er skip þola. Nýtt danskt fiskveiðieftirlits- og varðskip, sem nýlega hljóp af stokkunum á Aalborg værft var þannig smíðað með það fyrir augum að þola 200 tonna yfirísun án áhættu. Dr. Hans Otto Mertins, sem starfar við hafsvæðadeild þýsku veðurstofunnar hefur ritað eftirfar- andi grein um ísmyndun á fiski- skipum vegna ágjafar. Greinin var skrifuð áður en hin hörmulegu slys urðu, þegar togararnir ROSS CLEVELAND og KINGSTON PERIDOT fórust við ísland vegna ísingar og togarinn ROMULUS, sem sennilega fórst af sömu ástæð- um í Norðursjó. Þykir Sjómanna- dagsblaðinu eftir atvikum rétt að birta þessa fróðlegu grein í heilu lagi, sjómönnum til skoðunar og fróðleiks: Grein þessi var skrifuð fyrir hin hörmulegu siys, þegar Ross Cieve- land og Kingston Peridot fórust við ísland og Romuius, sennilega á Norðursjó. Skipskaðar verða ekki eingöngu í fárviðrum, árekstrum í þoku, strandi og eldsvoðum. Is, sem hleðst á yfirbyggingar, getur verið mjög hættulegur og hefur hvolft mörgum skipum. Við vitum, að áður fyrr þegar seglskip fóru suður fyrir Horn um kaldari árstímann, skeði það stundum í vondum veðrum, að ís hlóðst á seglabúnaðinn. Áhafnirnar gátu ekki lengur hagað seglum, skipunum hvolfdi og allir fórust. Norskir selveiðimenn hafa sagt mér, að bæði hvalveiðiskip og sel- fangarar hafi farizt vegna isingar í Norðurhöfum. Fyrri heimsstyrjöldina fyrri og fram undir 1930 stunduðu fremur smáir og afllitlir gufutogarar veiðar á Norðursjónum, við ísland og Ló- fót. I vondum veðrum leituðu þessi skip vars og hófu ekki veiðarnar aftur fyrr en lægði. Hins vegar hafa togarar alltaf verið í ísingarhættu á Barentshafi. Mörg þeirra skipa, sem þar hafa horfið, hljóta að hafa orðið ísingunni að bráð. Þegar jafnvægishlutföll skipanna raskast vegna ísingar, hvolfir þeim oft svo snögglega, að engir verða til frásagnar. Upp úr 1930 fóru skipin að stækka og vélaraflið að aukast. Þessi nýrri skip þoldu ísinguna betur en þau gömlu. Síðar hafa stór nýtízku skip hafið veiðar í Norður- höfum, t.d. á Grænlandssundi, Davíðssundi og við Grænland og Labrador. Þá eru þau oft í námunda við landflæmi þar sem feikikuldi er á veturna. Þegar þessi stóru, nýju skip, Framhald á bls. 81 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 35

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.