Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 61

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 61
Elínborg Kristjánsdótdr, kona Júlíusar. Elínborg lést árið 1965. efnaríkan fisk að borða — og stund- um ef vel gekk, ofurlitla aura ofan á lág embættislaunin, og maður gat farið í kaupfélagið og keypt sér kók og prins póló og keypt sér eitthvað að lesa. Þegar ég keypti af honum Rússann Eg kann margar sögur af Júlíusi, þrautseigju hans og dugnaði. Líka af hjartahlýju hans og svartnættis- skömmum. Sú saga er lýsir honum líklega best var þegar ég keypti af honum bífinn. Það var gamall Moskóvits, þá aðeins tveggja ára. Þetta var á þeim árum þegar landhelgisgæslan var dálitið á und- an rússum í vélfræði. Mótorinn var vondur, en auðvitað endurbætti Júlíus hann og með saman- lagðri þekkingu af togurum og skút- um, og ofurlitlu nýmóðins hugviti, kláraði mótorinn sig fínt hjá Júlla. Ég tók við bílnum og borgaði út í hönd. Við Júlíus áræðir þú aðeins tvennskonar viðskipti, staðgreiðslu eða gjöf. Hann var nefnilega af gamla skólanum og trúði á guð en ekki á afborganir. Það var ekki að sökum að spyrja með bílinn, þegar hann var kominn „á dekkið“, úr höndum vélstjórans. Smám saman fór hin rússneska ógæfa að hrjá mótorinn, og ég gaf mér heldur ekki tíma til þess að „þrífa hann alminnilega“ einsog hann Júlíus orðaði það, og það varð úr að honum bókstaflega var nóg boðið. Hann var þá kominn í land og orðinn yfireftirlitsmaður með varðskipunum. Júlíus tók bara af mér bílinn og skilaði mér honum svo spegilfægðum og í fínasta lagi næst þegar við komum inn og svona gekk það mánuðum saman. Þetta eru þau mestu reyfarakaup sem ég hefi gert með bíla, því honum fylgdi ókeypis umönnun frá sprenglærðum vél- fræðingi, þvottur og hvaðeina, svo lengi sem það varði. Þessi saga lýsir Júlíusi vel. Hann bókstaflega þoldi ekki að það sem hann hafði selt manni, stæðist ekki almenna gagn- rýni. Auðvitað var þessi bíll ekkert öðruvísi en aðrir rússar, nema þetta með hann Júlíus. Eftir að Júlíus var orðinn ekkjumaður hafði hann lengi þann sið að bjóða börn- unum á mat. Hann eldaði sjálfur og það var sko ekkert slor. Mjög fáir eru þeirrar ánægju aðnjótandi að vera boðnir í mat hjá kokkum með 65 ára reynslu í matar- gerð, en þegar þessi mynd var tekin voru liðin 65 ár frá því að Júlíus eldaði í kallana á Golden hope. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.