Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 66
VEIDARFÆRI
ALIS-HELLU-
handfœravindur
með sjálfvirkum hemlum.
NÆLON-handfœri
0,9- 1,0- 1,2- 1,3- 1,5-
1,7 — 2,0 — 2,5 mm.
HANDFÆRASÖKKUR
1,0 - 1,25 - 1,5 - 1,75 - 2
2,5 kg.
HANDFÆRAÖNGLAR
með gerfibeitu,
mislitir, tvílitir,
sjálflýsandi,
fjölbreytt úrval.
SEGULNAGLAR,
PILKAR,
KASTLÍNUÖNGLAR,
LAXALÍNUR,
SILUNGALÍNUR,
KOLANET
RAUÐMAGANET,
SILUNGANET.
LAX- SILUNGSÖNGLAR
KOLAÖNGLAR.
O.ELLINGSENHF
ANANAUSTUM
SlMI 28855
Elzta og stærsta veiðarfæra-
verzlun landsins.
mig alfarið í land og hefi síðan
starfað að skipaeftirliti.
— Hvað er háskalegasta sjóferðin
sem þú hefur farið?
— Ég veit það ekki. Líklega hefur
þó árásin á Súðina verið það alvar-
legasta. Það kom þýsk flugvél og hóf
skothri'ð á skipið úr fallbyssum og
varpaði að þvi sprengju. Þeir drápu
tvo menn, skipið var brennandi.
Sprengjan féll sem betur fer á að
giska 100 metra frá skipinu, en það
skalf allt og nötraði af þrýstingnum.
Botnventlarnir sprungu, en það
varð okkur til bjargar að slý hafði
myndast í síurnar svo skipið hélst á
floti.
Það er nú svo mikið búið að skrifa
um þetta að ég held að við ættum
ekki að ræða það nánar hér.
Um kvöldið sagði þýska útvarpið
að flugvél hefði sökkt 9000 tonna
skipi við ísland.
85 ára starfsmaður
— Og þú vinnur enn?
— Já, ég er skipaeftirlitsmaður
hjá Hafskip hf. hef verið það síðan
ég hætti í gæslunni. Reyndar er nú
búið að ráða nýjan mann sem er yfir
þessu, yngri mann og vaskari, en ég
er honum til aðstoðar. Ég syndi 200
metra á hverjum degi, ek bil og fer
allra minna ferða og flesta virka
daga er ég að störfum, því þetta er
stórt skipafélag núna Hafskip hf.
— Hvað með guð? Þú hefur alltaf
verið trúaður
— Já ég var mjög trúaður og
kirkjurækinn sem barn. Þetta hefur
haldist og ég held að ég hafi sjaldan
sofnað án þess að fara með bænir. Ég
hefi þá skoðun að það sé yfir manni
vakað og að maður sé aldrei látinn
afskiptalaus, sagði Júlíus Kr. Ólafs-
son, yfirvélstjóri að lokum.
Við þetta er litlu að bæta í sjálfu
sér. Við garðshliðið tekur hann
þéttingsfast í höndina á mér og við
horfumst í augu brot úr andartaki
og ég finn að í hendi hans og sál er
mikill styrkur, sem enst hefur á
langri og oft grýttri leið gegnum
lífið.
Jónas Guðmundsson
Margur maðurinn segir við
sjálfan sig og jafnvel aðra:
það
kemur
altirei
neitt
fyrir
mig
Þetta eru staðlausir stafir,
því áföllin geta hent
hvern sem er, hvar sem er.
Það er raunsæi að tryggja.
Hikið ekki — Hringið strax
ALMENNAR
TRYGGINGARf
Pósthússtræti 9, sími 17700
58 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ