Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 39

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Side 39
við, þeyttist upp hænsnastigann og þaut síðan aftur eftir blóðlifruðu dekkinu. En ég var ekki fyrr búinn að grípa í færið mitt og losa það af vaðbeygjunni en hróp mikið heyrð- ist kveða við framan frá bógverjun- um. Ég leit þangað — og sjá: Þarna kom Fiski-Gvendur allsber, jafnvel var hann berfættur, en með sinn tréklossann í hvorri hendi, skelfing- ar- og óðagotssvipur á andlitinu. Hann langstikaði aftur að skips- bátnum, þreif þar hlífðarsvuntu sína og vettlingakútana, skellti niður klossunum og steig upp í þá og hljóp síðan herðalotinn og kviknak- inn aftur að vaðbeygjunni sinni. Hann þreif færishönk og henti henni út á sjó, greip svo blýlóðið og öng- ulinn, tannaði í skyndi fiskinn innan úr steinbítsbeitunni — og síðan sveif lóð og öngull ámóta langt út frá skipshliðinni og færishönkin hafði lent. Vettlingarnir á handakrækl- urnar, litið í eggina á fiskihnífnum, tekið grunnmál — strax fiskur á. Og Fiski-Gvendur dró svo ört, að furðu gegndi. Svo slengdi hann inn í víðum boga svolítilli fiskpísl, starði síðan á hana, sagði, hvæsti: „Straff, straff, von, von — straff frá gjafaranum allra góðra hluta, segi það bara, já.“ En svo lagði hann fiskpíslina að vanganum, hvíslaði furðu hátt: „Lygimál, ekkert straff, bara merkir: mjór er mikils vísir.“ Þegar hér var komið, skellti Ari Dagbjartur upp úr, sá stillti maður, og vissulega varð hlé á drætti hjá flestum, sem þarna höfðu hamazt sveittir við að taka á móti því bjarg- ræði, sem gjafarinn góðra hluta lét rausnarlega í té. Og kostulegar voru augnagoturnar hjá þeim Höska og Mórauða kallinum, en milli þeirra stóð Gvendur. Hann leit hvorki til hægri né vinstri. Mjóir handlegg- irnir gengu eins og bullustengur í ganghraðri og gangvissri vél, hver sin og hver vöðvi í hinum magra skrokk herptist saman til þess ýtr- asta eða þá slaknaði undra skyndi- lega — allt eftir því hvert átakið var þetta eða hitt sekúndubrotið, og svitinn hrökk brátt í stórum dropum af hinum nakta og skinhoraða dráttarmanni. Þó að við værum á grunnu vatni, var lóðið ekki nærri því komið í botn, þegar Gvendur var búinn að hálsskera, gella og marka fiskinn og fleygja honum niður til hlés. Og eitt sinn þreif Gvendur lykkju af færinu og þeytti henni út yfir lunninguna, blés á eftir henni og tautaði, skjálfandi af óþreyju: „Ut, út, út, ég segi það bara og barasta, já!“ En fiskur var því nær ávallt á önglinum, þegar Gvendur tók grunnmálið —- og þá var að draga á ný. Og fjörutíu og þrjá fiska dró hann þá stuttu stund, sem leið, frá því að hann kom að færinu og þangað til allt í einu var eiður brenndur og við yrðum varir. Eg hafði þá fengið alls sextíu og tvo fiska, en Léttasótt- ar-Matthías einungis fjörutíu og tvo. Þegar Fiski-Gvendur var búinn að ganga frá færinu og fleygja fiskum sínum upp í kassann, rétti hann sig upp, stóð þarna, ber skrokkurinn meira og minna ataður blóði og slori, þerraði síðan munn og nef með vettlingi hægri handar, svo með hinum, báðir jafn blóðlifraðir og blautir — og því næst sagði hann frekar hlakkandi en argur: „Helvízkir, segi það bara, láta Gvensa garminn sofa!“ Hann hló, flíraði: „Sosum maklegt, passlegt fyrir Gvend, fyrir svokallaðan Fiski-Gvend, en....en guð gaf pilt, já, segi það bara, góðan pilt.“ Svo leit hann skyndilega beint í sólina: „Hana, þar skein sól, gaf guð sól- skin. Segi það, segi það bara, já.“ Það var víst ekki að efa, að hann hafði orðið svo feginn því, að ég skyldi vekja hann, að gremja út af hinu, hve seint það hafði verið gert, komst ekki að. Við hættum veiðum 3. septem- ber. Tíðin hafði verið alveg einstak- lega góð fram undir mánaðamót og gnægð fiskjar á miðunum. En svo hafði skyndilega gengið í rosagarð, norðan hvassviðri með haugasjó. Aflinn var meiri á Maríu en nokkru sinni áður á langri skipstjórnartíð Ara Dagbjarts. Raunar höfðu öll skip aflað vel, en engin Fagureyrar- skipin eins vel og María, ef tekið var tillit til mannafjölda. Dráttarhæstur var auðvitað Fiski-Gvendur, hafði dregið 38 skippund af þeim 225, sem komið höfðu á skip, en dráttur tveggja lægstu hásetanna aðeins 14 '/2 skippund hjá hvorum. Og Fiski-Gvendur reyndist ekki ein- ungis dráttarhæstur þeirra, sem voru á Maríu, heldur allra, sem voru á Fagureyrarskútunum, en á þeim voru alls rúmlega tvö hundruð manns. Aður en vika var liðin, var María litla komin upp á kamb og orðin þar rammlega skorðuð. En við, sem ekki áttum heima á Fagureyri, gátum ekki haldið heim, daginn sem við vorum búnir að setja skipið og ganga frá seglum, köðlum og blökk- um til vetrargeymslu. Við áttum allir eftir að dunda við eitt og annað fyrir sjálfa okkur, og svo dvöldum við þá í skútunni. Þegar ég var búinn að dubba mig upp eftir skyldustörfin, fór ég upp á dekk og fetaði mig síðan varlega niður eftir spýtnaspítunum, sem negldir höfðu verið á eina skorðuna. Þá er ég var kominn niður á kamb- inn, hugðist ég vitaskuld fara upp á götu. En úr því varð ekki, því að ég sá mann, sem ég sannarlega bar kennsl á, stefna til mín. Það var hinn mikli fiskikóngur, Guðmundur Þórðarson. Hann hafði nú sosum farið úr sjógallanum, var í gráum jakkafötum úr Iðunnarvaðmáli, blárri peysu, gljásvörtum blank- skóm og með grátt kaskeiti aftur á hnakka, smellan opin. Hann hafði hendur í buxnavöxum, gekk rykkj- ótt, hnykkti sér til og skók höfuðið ákaflega öðru hverju, svipað og kindur gera, sem hafa vöknað illa í vatnsfalli. Allt í einu leit hann í loft upp og tætti út úr sér: SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 31

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.