Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 34

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 34
birgja sig upp af goggólíunni, — það er þó eitthvað, sem er honum trúar- atriði,“ sagði Markús. Hvað sem trúnni leið, hlaut goggolían að vera Guðmundi eitt- hvað meira en annað, sem ekki er talið þarft, því að hann eyddi ekki eyri í óþarfa. Hann var sagður mjög ríkur, eiga stórfé á sparisjóði, voru nefnd 15 til 20 þúsund, og það var sosum ekkert smáræði, því að þegar sá maður dó núna fyrir nokkrum árum, sem var talinn ríkastur allra útvegsbænda í allri Vestursýslunni, voru eignirnar hans metnar að sögn á 30 þúsund eða rétt frílega það. Humm, einhvern veginn fékk ég það ekki til að ríma, að fyrst og fremst fégirni væri hvati þess, að hann Fiski-Gvendur legði annað eins á sig við færið og ég hafði verið vitni að í þessum túr. Það var sosum fleira en þetta með að gefa ljósabeitu, sem mælti á móti því. Hann hafði víst alltaf lagt vel til heimilis, og sagt var, að hann væri að gefa barna- börnunum eitt og annað, sem raun- ar var þarflegt, en ekki var allra barna á Fagureyri, og gestrisin höfðu þau hjónin verið — svona með máta.... Hvað þá? Metnaður? Kannski, — nei, ekki kom það til, þegar hann lét sig hafa það að fara hvern logndag á haustin og veturna, meðan hann heima var, einn á bát út á fjörð með byssuna — eða þegar hann sat lon og don við að smíða tóbaksbauka.... En hvað sem þessu leið, mátti ég ekki til þess hugsa, að annar eins reiðu- og vöndunar- maður dræpi sig á þessu æði sínu við færið, enda mætti hann sjálfur hugsa til þess, að ekki mundi Kristur frekar telja sáluhjálplegt, að maður dræpi sig á þorski, heldur en að hann lifði á einum saman þorski! Ég hristi höfuðið og leit ekki við Mórauða kallinum, var nú allur með hugann við háttalag Fiski-Gvendar undanfarna sex sól- arhringa, því æði var það, engin glóra í því: Þangað til núna í byrjun Löngu vaktarinnar hafði hann ekki blundað nema þá standandi og 26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ styðjandi sig við lunninguna, þegar eitthvert verulegt lát varð á, að hann yrði var: jú, einu sinni hafði ég séð hann setjast á káetukappann og halla sér upp að ofnörinu með aftur augun, en haldandi í færið og þess albúinn að bregða við, ef fiskur kippti í. Og seinustu tvo sólarhring- ana hafði hann ekki farið ofan í til að borða, heldur látið rétta sér soðninguna og grautinn upp á dekk. í gær hafði hann í lok Lönguvakt- arinnar hallað sér upp að mastrinu með soðningarbakkann í vinstri handarkrika og snætt með guðsgöfl- um þeirrar hægri. Þarna stóð hann, þegar ég fór ofan í. Skyndilega heyrðum við hinir heljarmikinn hlunk og allhátt glamur. Ég þaut upp í gatið og sá þá, að Fiski-Gvendur var að brölta á fætur, hruflaður á vinstra kinnbeini. Hann hafði sem sé sofnað hallandi sér upp að sívölu og hálu mastrinu, runnið út af því og skollið eins og tré- drumbur á dekkið. Þegar hann var kominn á hnén, fór hann ekki lengra að sinni, en seildist eftir bakkanum og tók að tína upp blautfiskinn, sumt upp í sig, sumt í bakkann. Og svona hélt hann áfram, unz hann náði ekki meiru með fingrunum. Svo brölti hann á fætur, sótti kartöfl- urnar yfir að öldustokknum til hlés, en sumar þeirra voru klíndar slori og fiskblóði. Þeim verst leiknu henti hann, en maulaði hinar eða lét þær í bakkann, þerraði þó fyrst af þeim á buxunum sínum, sem heita mátti að staðið gætu einsamlar, svo ataðar sem þær voru seltu og hálfstorknuðu blóði. Að þessu loknu gekk hann að lúkarakappanum, rétti bakkann niður og tautaði: „Ég segi það bara, ég segi það bara, já.“ I byrjun Morgunvaktarinnar í dag var farið að sigla áleiðis til lands. Þá virtist Fiski-Gvendur vera orðinn hreinlega trompaður. Þar eða hann var alllangt frá fiskikass- anum, þegar hann stóð við færið, hafði hann fleygt næturaflanum niður til hlés. Hann fór nú og hugð- ist víst kasta fiskinum í kassann, sem raunar var fullur fyrir. Litli maður- inn veitti því athygli, að eitthvert óvenjulegt gauf var á Gvendi, og svo fylgdist hann með gerðum hans. Sá hann þá, að hinn mikli veiðimaður tók rígroskinn þorsk og þeytti hon- um fyrir borð um leið og hann sagði: „Andskotann þeir eru að gera með þessa líka litlu ísmola hér inni á dekki, ég segi það bara, segi það bara, já.“ Markús flýtti sér til hans, hristi hann rækilega og sagði hastur: „Þú ert að kasta út fiskinum, sem guð hefur gefið þér, ég vil ekki ákveða Kleppsmaturinn.“ Gvendur rak upp á hann augun, skók höfuðið og hryllti sér öllum til: „Kasta út, segirdu, sem guð gefur mér? Iss, siss, segi það bara já, já.“ Svo var þá að því komið, að að- gerð skyldi hefjast. Fiski-Gvendur var afbragðs flatningsmaður, bæði fljótur og velvirkur. Þegar verið var að setja upp flatningsborðin, tókum við eftir því, að hann fór að rölta fram og aftur með lunningunni til hlés, hafandi flatningshnífinn milli tannanna. Hann skimaði, og hann þuklaði fram með styttunum, minnti mig á frásagnir af sjóræn- ingjum, sem klifruðu yfir í skip með biturlegar sveðjur í trantinum. Allt í einu leit svo Gvendur út fyrir lunn- inguna og sagði: „Segi það bara, — skyldi ég hafa misst ófétis hnífinn fyrir bord, bezta bitjárn frá Dús í Reykjavík, segi það bara, já?“ Hann þurfti sosum ekki að spyrja. Um leið og hann sagði fyrsta orðið, datt hnífurinn í sjóinn. Höskuldur gamli, sem var byrjaður að hausa, glápti tinandi að vanda, og sagði síðan: „Ha? Haldið það sé spaug? Haldið, að hann muni flytja á ein- um héðan, sá arna?“ „Nú þykig még týga, ég held það fagi brágum að loga!“ sagði Jón á Hrynjanda glottandi. Og sjálfur Ari Dagbjartur mælti: „Ólukku kallinn að gera sig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.