Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 81

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 81
Minning Eiríkur Kristófersson skipherra Fæddur 5. ágúst 1892 - dáinn 16. ágúst 1994 F'n'kur Kristófersson er látinn. F'tíkur fæddist 1892 og var því 102 ara þegar hann lést. Það er löng ævi, eEki síst ef haft er í huga að hann var ár á eftirlaunum eftir að starfsævi auk. Eiríkur fór á sjóinn 14 ára gamall °8 gerði sjómennskuna að ævistarfi. Úann var á sjó í um hálfa öld, lengst af Setn starfsmaður Landhelgisgæslunnar, Par af um 37 ár skipherra. Það þarf ^rikið þrek, bæði andlegt og líkamlegt i þess að gegna slíkri stöðu, sérstak- e§a á árunum 1920-30 þegar siglinga- l^ki voru ekki annað en kompás, andlóð og vegmælir. f*að var ekki heiglum hent að sigla Sk'PÍ við strendur íslands í Vctrarveðrum og eiga þar að auki að ^lpa öðrum skipum undir slíkum ringumstæðum. Það veit enginn |je,na sá sem reynt hefur, enda urðu estir skipstjórar á þessum árum ekki Un|r. Að standa í opinni brú í stórsjó °S nátttuyrkri og stara út í myrkrið og V|ta ekkert hvað er framundan. Það tekur á karlmennskuna enda gáfust ^jafgir upp á því og fóru í land. r‘kur var mikill gæfumaður á sl°num. Bjargaði fjölda skipa og Jaipaði hundruðum sjómanna og e,8a því margir honum mikið að *aca. Eiríkur var dulur maður á g^nurn en þægilegur í umgengni. VrJendum líkað vel hjá honum, enda ar hann góður leiðbeinandi og hafði trá rr - - • -- tliðl; Uaórgu að segja. Hann var ólatur að a öðrum af þekkingu sinni án rar mikilmennsku. Frægastur varð arin þó er hann átti í deilum við all Anderson þann bresk-norska skip- herra sem fór fyrir breska flotanum í 12 mílna deilunni og eru biblíutil- vitnanir þeirra á milli landsfrægar, en Anderson þessi var hálfgert dusil- menni. Annars báru breskir sjómenn mikla virðingu fyrir Eiríki og það ekki að ástæðulausu. Hann bjargaði fjölda breskra skipa og sjómanna úr bráðum lífsháska og einnig tók hann þá manna mest í landhelgi. Þrátt fyrir það átti hann virðingu þeirra, hvort sem hann bjargaði þeim frá bráðum bana eða lét setja þá í tugthús. Oft kom honum að gagni þessi hæfileiki að geta talað menn til og náð trúnaði þeirra. Vitanlega var Eiríkur ekki gallalaus frekar en aðrir dauðlegir menn. Eins og einn stýrimaður sagði: „Maður talar ekki illa um skipherrann, því hann er þjóðhetja.“ Eiríkur var tvíkvæntur og átti þrjú börn með fyrri konunni, en hjónabönd hans entust ekki lengi og bjó hann einn síðustu 30 árin. Síðustu ár Eiríks voru honum að mörgu leyti ánægjuleg. Hann dvaldist á Hrafnistu og miðlaði öðrum af sínum andlega styrk og var í nánu sambandi við lækna af öðrum heimi. Eg, ásamt mörgum öðrum gömlum skipsfélögum hans hitti Eirík síðast þegar hann varð 100 ára. Eg gekk til hans og heilsaði honum, hann var farinn að missa sjón, en þekkti mig strax á röddinni og segir við mig að nú fari þetta að styttast hjá sér. Nú fari hann að kveðja þennan heim og kvíði hann því ekki, þar sem hann viti heilmikið um hvað taki við. A eftir mér heilsaði honum gamall skipsfélagi af vs. Þór og kynnti sig, en karl sagðist ekki muna eftir honum. Þá sagði maðurinn: „Ég var vélstjóri hjá þér á Þór.“ Eiríkur sagðist ekki þekkja neina vélstjóra — en vitanlega þekkti hann manninn. Það er mikil gæfa sem fylgir mönnum sem hafa verið á sjó í hálfa öld og rúmlega það og hafa aldrei misst mann af skipi sínu, né slasast alvarlega við skyldustörf, því oft þurfa þeir að tefla djarft sem stunda björgunarstörf hér á hafinu kringum landið. Fari hann í friði, Guðmundur Kjœrnested ANn A D A G S B L A ÐI f ) 81
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.