Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1929, Blaðsíða 365
365
»,að rjeltindi kvenna á íslandi verði aukin, og að efla menningu þeirra
me'ð samtökum og fjelagsskap; auk þess vill fjelagið styrkja alt það, er
horfir til framfara í landinu og leggja lið sitt til framsóknar i málum
þeim, sem standa efsl á dagskrá þjóðarinnar“. — Fjelagatala um 100. —
Árstillag kr. 3,00. — Stjórn skipa: Ragnhildur Pjetursdóttir (form.), Guð-
rún Pjetursdóttir, Halldóra Bjarnadóttir, Margrjet Jónsdóttir (gjaldk.),
Theódóra Thoroddsen (ritari).
Kvennaskólinn
1 Reykjavik er stofnaður 1874, i þeim tilgangi „að veita ungum stúlk-
um, einkum sveitastúlkum, sem iítið tækifæri hafa til þess að iæra, til-
sögn til munns og handa". Skólinn er i 4 bekkjum. Námsgreinar: ís-
lenska, danska, enska, landafræði, sagnfræði, stærðfræði, náttúrufræði,
heilsufræði, eðlisfræði, skrift, teikning, hvitur útsaumur, utanyfirfata-
saumur, ljereftasaumur, baldýring, prjón, söngur. — Námstimi er frá 1.
okl. til 14. mai. Kénslukaup yfir námstimann er 100 kr. í skólanum eru
heimavistir fyrir 30 nem. (síðan 1909). Skólinn hefir haft sjerstaka hús-
mæðradeild síðan 1909. Skiflist liún í 2 námsskeið á ári, anrtað 1. okl.
til febrúarloka, hitt frá 1. mars til júniloka. Á hvoru námsskeiði eru
12 nemendur. — Skólinn starfar á Frikirkjuvegi 9, s. 290. — Forstöðu-
kona skólans er ungfrú Ingibjörg II. Bjarnason, alþingism. Forstöðukona
Hússtjórnardeildarinnar er Elisabet Jónasdóttir. — Skólastjórn: Anna
Daníelsson frú (form.), Guðrún J. Briem frú, Katrin Magnússon frú,
Bjarni Jónsson prestur, Kristinn Daníelsson præp. hon.
Kvenrjettindafjelagiö,
stofnað 27. jan. 1907, vinnur að því að ísl. konur fái fult jafnrjetti
á við karlmenn, kjörgengi og rjett til emhætta og atvinnu, með sömu
skilyrðum sem l>eir, o. fl. — Stjórn skipa: Laufey Valdemarsdóttir (form.),
Elisabet Björnsdóttir (ritari), Kristin Guðmundsdóttir (gjaldk.), Briet
Bjarnhjeðinsdóttlr, Guðrún Ásmundsdóttir.
Lagadeild Háskólans.
- Prófessorar: Einar Arnórsson, Ólafur Lárusson, Magnús Jónsson.
Landakotsskóli,
(barnaskóli) er stofnaður árið 1898. Er í 7 „bekkjum“. — Kenslugjald
á mán. er kr. 10.00—16.00. — 120 börn voru síðastl. ár i skólanum. Skóla-
húsið, sem er, var reist árið 1909. Forstöðum. er Præfekt Meulenberg. -
Landakotsspítali
(St. Josephs spítali) er eign St. Josephs nunnureglunnar og kostaður
af henni. — Var reistur árið 1902. — Rúm er ætlað 60 sjúkl. Nú eru þar
90—100 sjúkl. — Meðlag sjúkl. á dag er: kr. 7 í cinbýlisstofum, kr. 5 i
sambýlisstofum. — Forstöðukona er Maria Viqtoria, abbadis.
Landlæknir.
Landlæknisemb. var stofnað 18. mars 1760. Landlæknir er nú Guðm.
Björnson (síðan 1906). Skrifstofa Amtmannsstíg 1. Skrifari Bjarni Jcnsson