Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1929, Síða 366
3(56
læknir. Skrifstofutími kl. 10—12 f. h., 1—3 og 4—G e. h. Landlæknir lil
viðtals kl. 11—12 f. h.
Landsbanki íslands.
Stofnaður með lögum 18. sept. 1885, tók til starfa 1. júlí 1886. — Nú-
gildandi lög um bankann, frá 15. apríl 1928. — Tilgangur bankans er:
1. A‘ð sluðla að tryggri sldpun á peningamálum landsins, með það fyrir
augum, að gull og gullgildir seðlar geti sein fyrst orðið og haldi siðan
áfram að vera hinn almenni gjaldeyrir í landinu. í því skyni ber stjórn'
bankans einkanlega að gæta þess, að fje bankans sje tryggilega fyrir
komið til ávöxtunar, og sje jafnan handbært að eins miklu leyti og
krefjast verður af seðlabanka. Svo ber og stjórn bankans að afstýra, eftir
því sem unt er, með kaupum og sölum á erlendum gjaldeyri og verð-
brjefum, sem skráð eru á erlendum kauphöllum, með viðskiftum við
aðrar peningastofnanir í landinu og með tilhögun útlánsstarfseminnar,
truflun þeirri á peningamálum og atvinnulífi, sem annars má vænta,
að almennar hagsveiflur hafi í för með sjer. 2. Að reka bankastarfsemi
eftir þvi, sem nánar er til tekið í lögum bankans. — Aðalaðsetur í Reykja-
vík; útbú á Akureyri, ísafirði, Eskifirði og Selfossi. — í Reykjavík er
bankinn opinn kl. 10—3, á iaugardögum aðeins 10—1. — Yfirstjórn bank-
ans er í höndum bankanefndar, er skipuð er 15 mönnum, sem sameinað
Alþingi kýs, og ráðherra þess, er fer með bankamál. Stjórn bankans að
öðru leyti annast bankaráð skipað 5 mönnum, og framkvæmdastjórn
slcipuð 3 mönnum (bankastjórum). — I bankaráði eru nú: Jón Árnason,
framkv.stj. (settur form.), Jóhannes Jóhannesson f. bæjarfógeti, Jón Bald-
vinsson forstjóri, Bjarni Ásgeirsson bóndi, Metúsalem Stefánsson búnað-
armálastjóri (varamaður), — Bankastjórar eru: Magnús Sigurðsson, L.
Kaaber, Georg Ólafsson. Aðalbókari: Richard Torfason. Aðalfjehirðir:
Guðmundur Guðmundsson.
Landsbókasafnið.
Stofnað árið 1818. Rað var talið að eiga um siðustu áramót 121.060 bindi
af bókum og 7896 bindi af handritum. — Notkun safnsins 1928: Á lestrar-
sal voru lánuð 12928 bindi af bókum og 4559 bindi af handritum. —
Lesendur 12000. — Af útlánssal voru lánuð 6540 bindi 584 mönnum. —
Lestrarsalurinn er opinn alla virka daga kl. 1—7 e. li. Útlánssalur kl.
1—3 e. h. — Landsbókavörður: Guðmundur Finnbogason dr., 1. bókav.;
Árni Pálsson caml., 2. bókav.: Hallgrimur Hallgrímsson meistari. Að-
stoðarbókav.: Pjetur Sigurðsson meistari.
Landsspítalasjóður,
er myndaður af almennum samskotum fyrir forgöngu kvenna, sem
minnast vilja fenginna stjórnmálarjettinda 19. júni 1915, með því að
stuðla að þvi, að komið verði upp landsspítala. Sjóðurinn er stofnaður
19. júní 1916 og skipulagsskrá hans staðfest 24. nóv. s. á. — Um árámót
1928—1929 hafði sjóðnum áskotnast alls um 342 þús. kr., en af honum
hefir verið eytt til byggingar landsspítalans síðan haustið 1925, 189 þús.
kr. — Stjórn sjóðsins skipa nú: Ungfrú Ingibj. H. Bjarnason (form.),
ungfrú Inga L. Lárusdóttir (ritari), frú Ágústa Sigfúsdóttir (gjaldk.), frú