Eimreiðin - 01.01.1940, Blaðsíða 64
50
f HAMINGJULEIT
EIMREIÐIN’
sem stendur báðum fótum í islenzkri mold og elskar sjólf-
stæðið, og hann hlakkar til þeirrar áhyrgðar, sem fylgir því.
Hann situr lengi og er hugsi. Hjá honum er að skapast á-
kvörðun, sem firinvillur framandi skoðana með geipiorðuð
tilboð um sjálfstæði án ábyrgðar geta ekki haft nein áhrif á.
Hugur hans flýgur móti hinum kaldsama vindi, eins og væng-
þreyttur fugl kominn af hafi, norður yfir fjöll og sveitir, austur
yfir hraun og sanda. í einum norðlægum heiðarslakka, þar
sem lækirnir hraða för sinni og daldragið byrjar að finna til
sin, — inni við hjarta víðáttunnar, — stendur lítill kotbær,
hjúpaður nýsnævi. Hann þarf að komast norður í þennan kot-
bæ, því að hann hefur fengið hugmynd um, að þar kunni hann
að finna þetta, sem hann hefur farið svo langt yfir skamt til
að leita að. Hann þarf að finna það sem fyrst, og hann veit, að
finni hann það ekki þar, þá finnur hann það hvergi. Þá hefur
hann glatað hamingju sinni, áður en hann fann hana.
Eiríkur Karlsson stendur á fætur. Dómkirkjuklukkan slær
tólf slög. Það er byrjaður nýr dagur. Hann má til með að fara
að hraða sér heim.
Forsíðulitmyndin.
Undanfarin þrjú ár hefur Eimreiðin flutt litmyndir af fögr-
um og merkum stöðum hér á landi. Þrátt fyrir aukinn til-
kostnað vill hún halda þessari byrjunartilraun áfram meðan
fært er og flytur að þessu sinni litmynd af Herðubreið
(1682 m.), hinni fögru og tilkomumiklu fjalldrotningu norð-
austuröræfa landsins. Ljósmyndin er tekin úr Herðubreiðar-
lindum af frk. Dóru Guðmundsdóttur, en útfærsluna í litum
annaðist Vignir ljósmyndari. Myndamótin eru búin til í Prent-
myndagerð Ólafs J. Hvanndals, en prentunina annaðist, eins
og jafnan áður, Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.