Eimreiðin - 01.01.1940, Blaðsíða 101
eimreiðin
ÍSLAND 1939 — STUTT YFIRLIT
87
eitt gufuskip. Auk þess var lokið byggingu nýju „Esju“ í
Danmörku. Kostaði hún eftir gengisfallið um kr. 2 200 000.
Húsabyggingar í sveitum voru með mesta móti þetta ár og
árið áður. Voru reist rúm 200 íbúðarhús hvort árið, er til
jafnaðar urðu á 8000 kr. hvert hið fyrra, en 8500 síðara árið.
Viðskiftin. Kröfupólitík liðinna ára hafði með harðfylgi og
atkvæðamagni samfara aflaleysi og lágu afurðaverði skapað
ástand, sem leiddi af sér ofmikla útþenslu lánsfjár og útgáfu
seðla, sem ekki var til nóg verðmæti á bak við. Islenzkir pen-
ingar höfðu þvi eðlilega fallið mjög í verði á erlendum mark-
aði, en verið haldið uppi hér heima með ofhárri skráningu og
höftum á innflutningi og yfirfærslum. Framleiðslutregðan
samfara hinum dýra rekstri hafði nú sligað atvinnurekstur-
inn svo, að það ráð var loks tekið að brevta skráningu íslenzku
krónunnar. Var hún 4. apríl lækkuð um 18%, sem þó var of-
Htið. Yfirfærsluhöftum þurfti að halda eftir sem áður, enda
niikið erlent fé hér innifrosið. í byrjun stríðsins féll sterlings-
Pundið, svo að ekki þótti fært að binda krónuna við það lengur.
Þó hafði þetta þau áhrif, að krónan lækkaði aftur um nær 11%,
°g var verð hennar í dezember reiknað 33,90 gullaurar á móts
við 46,41 í dez. 1938.
Vitanlega rétti þessi gengislækkun nokkuð hlut framleið-
€nda. En óvíst er þó hvort þeim hefði nægt það, ef ekki hefði
komið allmikil verðhækkun vegna stríðsins síðustu mánuði
ársins, eigi aðeins á þær afurðir, sem óseldar voru, heldur og
uokkur uppbót á þær, sem seldar voru, en ekki útfluttar. Af
þessu leiddi, að það náðist líkur hagstæður verzlunarjöfnuður
fyi'ir árið 1939 eins og 1938, eins og þessar tölur sýna:
Útflutt
kr. 69 654 000
— 57 753 000
Innflutt
1939: kr. 61151 000
1938: — 49 102 000
1937: — 53 309 000
1936: — 43 053 000
— 58 988 000
— 49 642 000
Þótt þessi fjögur ár sýni öll hagstæðan jöfnuð, hefur það þó
ekki nægt á móti hinum svonefndu „duldu greiðslum“. Hallinn
hefur jafnast af nýjum erlendum lánum og auknum innifrosn-
um erlendum innstæðum í íslenzkum bönkum.