Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1940, Síða 92

Eimreiðin - 01.01.1940, Síða 92
78 GRÖF JAKOBS EIMREIÐIN með gagnlegum upplýsingum um löncl og þjóðir. Björn Jór- salafari skrifaði ferðasögu, sem nú er því miður glötuð, en Arngrímur lærði mun hafa haft hana, hvað sem svo hefur orðið af henni. Gissur Hallsson frá Haukadal skrifaði leiðar- visi, er hann nefndi Flos peregrinationis — blóm heitgöng- unnar — og fjallaði þar um Rómaferðir og Suðurlönd, en hann var allra manna kunnugastur þar syðra og var betur metinn í Róm en nokkur annar íslenzkur maður hafði verið fyrir hans dag. Ferðasaga hans er nú fyrir löngu týnd. Nikulás Bergs- son ábóti að Þverá ferðaðist víða um lönd (andaðist 1159), og eftir hans fyrirsögn var ritað „leiðarvísir og borgaskipan“. Fleira mætti nefna af þessu tagi, þótt hér verði ekki farið lengra út í þá sálma. Úr pílagrimsferðum til Santiago hefur dregið mjög á siðari öldum. Þó er enn töluvert aðstreymi ferðamanna til borgar- innar, scrstaklega í júli, en i þeim mánuði er messudagur heilags Jakobs. Mörgum dýrgripum hefur verið rænt úr dóm- kirkjunni, eða þeir hafa glatast á annan hátt, en þó á hún enn mikinn auð, fágæta gripi og helga dóma. „E1 lenguajero“ — málamaðurinn — er trúnaðarmaður biskupsstólsins. Hann verður að kunna mörg mál og vera vel heima í sögu staðarins. Hann hefur það starf á hendi að sýna ferðamönnum af hin- um ýmsu þjóðum dómkirkjuna og alla þá fjársjóði, sem hún hefur að geyma. Þar getur enn að líta höfuð Jakobs postula, mjólk úr brjóstum Maríu meyjar, svo hvíta og hreina, að það er engu líkara en hún sé alveg ný; einn þyrni úr kórónu Krists, sem á föstudaginn langa verður rauður sem blóð, að því er sanntrúaðir sjónarvottar hafa fullyrt; smápjötlu úr kyi'tli Mariu meyjar, höfuðin af sjö hinna ellefu þúsund meyja og handlegg af heilögum Kristófer, stórvaxinn og kraftalegan. Alt er þetta vandlega geymt í insta helgidómi hins veglega guðshúss. Trúaðar sálir knékrjúpa þessum dýrmætu leifum í óumræðilegri auðmýkt og lotningu og heita á þá til árs og friðar. Og svo mikill kraftur fylgir trú þeirra, að blindir fá sýn, haltir ganga og sjúkir menn verða heilir heilsu. Ef trúa skal þeim sögum, sem þaðan eru sagðar, gerast ósjaldan slík kraftaverk við gröf heilags Jakobs í Kompostela enn þann dag í dag.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.