Eimreiðin - 01.01.1940, Qupperneq 118
104
RADDIR
EIMREIÐIN'
ingur iið lialda, að þetta bandalag sé ótakmarkað. Þeir einir, sem þekkja
rússneskt lundarfar, geta liotnað í samningnum milli Þýzkalands og
Rússlands, aðrir ekki. í samningnum er ekkert, sem sýni ákveðna og
ljósa afstöðu Ráðstjórnar-Rússlands. Hitt er aftur á móti ljóst, að
Þýzkaland afsalar sér ]>ar réttindum. Það lét af hendi Austur-Pólland
til Rússlands. Það lýsir yfir því, að það bafi engra hlunninda að gæta í
Eystrasalti. Það bættir öllum tilraunum í þá átt að háfa áhrif í Ukrainu.
Allur áróður í Þýzkalandi gegn Ráðstjórnarríkinu hættir þegar í stað.
Svo á og allur áróður í Rússlandi gegn Þýzkalandi að hætta. En rúss-
nesku blöðin eru ekki iengur hin eiginiegu áróðurstæki Rússa, heldur
fundahöldin i verksmiðjunum og meðal verkamanna um land alt, svo
og auglýsingarnar, sem alstaðar eru festar upp á opinberum stöðuni.
Og sagt er, að áróður gegn nazismanum haldi enn áfram á þenna hátt
í Rússlandi. Rússar láta sig aldrei lienda það að reisa utanríkispóli-
tík sína á náinni aðstoð erlends stórveldis, nema að svo miklu leyti
sem sú aðstoð er fram komin til að hrinda heimsbyltingunni i fram-
kvæmd. Þetta er álit hins svissneska blaðamanns.
Nýtt heimsskipulag.
Mikið er nú í erlendum blöðum og tímaritum rætt um viðtækt ríkja-
samband upp úr styrjöld þeirri, sem nú stendur yfir. Er hugmyndin
um Bandaríki Evrópu að vísu ekki ný. Þetta ríkjasamband er hugsað
þannig, að það nái yfir allmikinn liluta Evrópu og brezka heimsveldið.
Því er ætlað að starfa á lýðræðislegum grundvelli og tryggja víðtækari
og frjálsari viðskifti milli allra lijóða í sambandinu, svo og öryggi i al-
þjóðamálum. Enska skáldið H. G. Wells liefur í nýútkominni liók, sein
beitir „Hin nýja heimsskipan" (The Xew Worlcl Orcler) iagt drög að nýrn
mannréttindaskrá eða yfirlýsingu um hið nýja þjóðfélagsskipulag. En
sá galli er ú þessum bollaleggingum Wells, að það er eins og hann gef'
jafnvel i skyn, að slík ný mannréttindaskrá myndi leysa vandamálið-
Reynslan sýnir þvert á móti, að stefnuskrár leysa út af fyrir sig aldrei
neitt vandamál.
Hin nýja sambands-hreyfing hefur meðal annars það takmark að
leiða ófriðinn til l.vkta með því, að ófriðaraðilarnir gerist samherjai'
og hlutlausu þjóðirnar geti einnig verið með, þær sem vilja. Takmarkið
virðist að vísu ærið fjarlægt og liugmyndirnar um framtíðarskipulagið
ærið á reiki. En höfuðstöðvar Samlninds-hreyfingarinnar (Fcderal Vnion
Movement) eru í London, og hefur fjöldi einstaklinga og félagsheilda
lýst sig samþykka markmiði hennar, þar á meðal Verkamannaflokkur-
inn brezki.