Eimreiðin - 01.07.1949, Blaðsíða 12
164
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIK
mál, samgöngumál, heilbrigðismál, hafnarmál, skipu-
lags- og byggingarmál. Kostnaður við fylkisstjórn og
fylkisþing greiðist úr fylkissjóði. Tekjustofnar fylkis-
sjóðs skulu ákveðnir með lögum, og séu hinir helztu
þeirra fasteignaskattur úr fylkinu og hluti af toll- og
skatttekjum ríkisins.
Tillögur þær í stjórnarskrármálinu, sem fram hafa
komið utan alþingis, eru mörgum íslendingi, bæði í
sveitum og bæjum, alvarlegt umhugsunarefni, og þaer
hafa verið ræddar á fundum og mannamótum víða
úti um land. Málið er í deiglunni og á fyrir sér að
skýrast. Flokksblöðin hafa undantekningarlítið ýmist
tekið því vinsamlega eða skýrt frá gangi þess án þess
að taka sjálf ákveðna afstöðu. Þetta er eðlilegt í
byrjun, og sennilega er til of mikils ætlast, að þing-
mannaefnin í þessum kosningum treystist almennt til
að verða við áskorunum um að gefa góð og greið svör
um fylgi sitt við tillögurnar. Svo er um mörg stórmál,
að það tekur tíma fyrir þá menn að átta sig á þeim,
sem fyrirfram eru bundnir gömlum viðjum.
Ályktanir Þingvallafundarins eru aðeins um megin-
drætti í væntanlegri stjórnskipan. Um einstök atriði
í tillögunum munu eðlilega verða skiptar skoðanir. Ma
þar til nefna tillögurnar um skiptingu landsins í fimm
fylki, sem þá kæmu í stað fjórðungaskiptanna nú.
Um þetta og fleira mun þurfa að ræða ítarlega, áður
en endanlegar ákvarðanir verða teknar, enda virðist
hér fremur um að ræða stjórnarfarsákvæði en beint
stjórnarskráratriði. En málið er komið á þann rekspöl,
að vænta má góðs árangurs. Fjórðungssambönd hafa
verið stofnuð til að fylgja því fram til sigurs, og ný
eru í undirbúningi. Farsæl niðurstaða fæst með sam-
einuðu átaki þjóðarinnar allrar, og sem alþjóðamál, en
ekki sem flokksmál, liggur það nú fyrir til úrlausnar.