Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Page 30

Eimreiðin - 01.05.1964, Page 30
118 EIMREIÐIN hin fræga íslendingabrag sinn og sagði í honum að „ei djöfullegra dáðlaust þing en danskan íslending." Nú þótti yfirvöldunum keyra alveg fram úr hófi og og virtist líklegt að hann yrði dæmdur til fésektar og ar. Hann flúði til Noregs með aðstoð vina sinna. Á leiðinni út orti hann Kveðju til íslands; í henni indi: íslands tindar sökkva í sjá sjónum fyrir mínum; skyldi ég oftar, Frón, ei fá faðmi sveipast þínum. Ó, hve mjög ég elska þig, ættarlandið góða, sem í faðmi fæddir mig, fóstran ininna ljóða. Réttarhöldin fóru fram í Danmörku og féll dómurinn Jóni í vil og hvarf hann þá heim og árið 1872 stofnaði hann nýtt blað Göngu- Hi'ólf og gagnrýndi stjórnarvöldin eftir sem áður, og Hilmar Fin- sen sem nxi hafði verið skipaður landshöfðingi. Einn morgun hafði verið dreginn upp fáni við hús hans með áletrun „Niður með landsstjórann". Jóni var nú kennt um þennan skandala og höfð- að mál gegn honum. Það var ekki álitlegt fyrir félausan tvítugan ungling að eiga í málaferlum við æðsta embættismann landsins, sem hafði stjórnina að baki sér og nxi flúði Jón land í annað sinn en nxi til Ameríku. Jón Ólafsson var eldheitur ættjarðarvinur, en hann var líka, á þessu skeiði ævinnar, uppreistarmaður, oft ofsafenginn og sást lítt fyrir, enda á þeim aldrei þegar æskufjörið er mest og hugsanirnar ótamdar. En ef til vill þurfti þjóðin einmitt þá þessa hrópandi rödd til að vekja hana til framsóknar og niunu áhrif hans í þá átt hafa verið mikil ekki sízt á yngri kynslóðina. hann þekkti stefndu Jóni fangelsisvist- eru þessi er- Alaska. Og nú var þessi ungi ævintýramaður kominn vestur til landa sinna í Vesturheimi. Hann var undursamlega fljótur að átta sig á

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.