Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1964, Blaðsíða 59

Eimreiðin - 01.05.1964, Blaðsíða 59
EIMREIÐIN 147 tekur fram hinum eldri þýðingum aí sálminum. Það leynir sér ekki, að hér er komandi skáld að verki, þó sjá megi, að honum eru enn eigi vængir fullvaxnir. Áhugi hans a meiri háttar ritstörfum hafði ekki vakinn verið enn sem komið Var.“ Hins vegar er sjálfsagt að taka til greina það, er sannast feynist um aldur þýðingarinnar, e‘tda breytir það engu um gildi liennar, og hitt jafn satt, að séra Jóni áttu enn eftir að vaxa vængir um andans flug og skáldskapar- ■snilld. K.aflinn „Það heiðarlega og vel- gáfaða skáld“ fjallar um störf séra Jóns í þágu Hrappseyjarprent smiðju, og þó einkum, eins og vera óer, um þann merkisviðburð, er þar var gefin út fyrsta ljóðabók uans, þýðingar úr kvæðurn Christ. Kr. Tullins, og nokkur frumkveð- tn kvæði séra Jóns sjálfs. Eru þýð- tngarnar hinar athyglisverðustu, °g bera ágætt vitni skáldskapar- gafu séra Jóns, bæði um andríki °g málfar, eins og séra Sigurður ieggur réttilega áherzlu á í umsögn sinni um þær. Verður það þó sér- staklega sagt um „Sæförina“, en þýðing hennar kom í annarri (auk- tnni og endurbættri) útgáfu bókar- innar (1783), tæpum áratug eftir að hún var fyrst prentuð, og þess vegna auðsætt, að hún hefur att vinsældum að fagna. í „Sæför- lnni“, sem er mest þessara kvæða, »náði líka þýðandinn sterkustum strengjatökum“, segir séra Sigurð- Ur> og er það laukrétt athugað. í fyrrnefndri grein minni um skáld- Jð fór ég um þá þýðingu hans þess- um orðum: „Einkum er þýðingin á „Sæförinni“, undir hrynhendum hætti, með snilldarbragði; þar dregur séra Jón víða arnsúg í vængina og leikur sér að dýrum bragarhættinum; hér eru „Mál- kynngi og myndagnótt". Gott dæmi þess er þetta erindi: Stórmektugur í engli og ormi einn þú vottast sami Drottinn! allt eins gildir veraldar-veldi og vetrarlauf í þínum metum; ólgu stillir stoltrar bylgju, stormur hvín að boði þínu; geislar þínir gylla krónu, Fyrirsögn næsta og 8. kafla rits- ins, „Leikhnöttur lukkunnar", liitt- ir ágætlega í mark, en það eru upphafsorð hinnar kunnu og áhrifamiklu grafskriftar, er skáldið orti um sjálfan sig síðustu nóttina, sem hann dvaldi í Galtardal. En um þá örlagaríku atburði, hjúskap hans og skilnað þeirra hjónanna, og aðrar orsakir, sem leiddu til brottfarar hans norður að Bægisá, fjallar höf. í þessum kafla af víð- tækri þekkingu og glöggskyggni. Verður það eigi síður sagt um þrjá næstu kafla ævisögunnar („Bægisá“, „Að búi og brauði", og ,Grannar og góðvinir“, bls. 92— 141). Þar er mjög ítarlega og skil- merkilega lýst Bægisá, rakin saga staðarins, getið ýmissa Bægisár- klerka, sagt frá starfsárum séra Jóns þar, nágrönnum hans og vin- um, en hann naut þar mikilla vin- sælda. Er í þessum köflum geysi- mikinn fróðleik að finna um það langa og merka tímabil í ævi séra Jóns, er hér um ræðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.