Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1975, Page 11

Eimreiðin - 01.07.1975, Page 11
EIMREIÐIN saman ásamt Kristni. Það var dýrasta bók á íslandi, sagði frændi minn, Vilmundur landlæknir. Magnús Ásgeirsson, Tómas og Erlend- ur voru líka ráðgjafar Helgafells, og Magnús og Tómas tóku að sér stjórn tímarits forlagsins. Magnús var mjög frjálslyndur maður. Hann var talinn sósíalisti, en ég efast um, að hann hafi talið sig það sjálfur. Hann var fyrst og fremst húmanisti og stjórnleysingi. Sannleikurinn er sá, að á þessum árum voru mörkin ekki eins glögg og nú á milli sósíalista og fólks með aðrar pólitískar skoðanir. Við vorum allir húmanistar, og það laðaði suma að sósíalismanúm, að kenningar hans voru mannlegar. Þeir vissu ekki um erfiðleikana, sem voru á fram- kvæmd hans; að maðurinn er spillt dyr og vill ekki yfirgefa sollinn. Annar maður, sem átti hlut að stofnun Helgafells, var Sigurður Nordal. Hann gaf útgáfunni nafnið, og við áttum margar stundir sam- an þessi árin. Tómas hittum við líka oft, en hann og Sigurður voru miklir mátar. Á þessum tíma var Sigurður Nordal langmesti áhrifa- maðurinn í öllum menningarmálum. Allt var borið undir hann, sem gera átti. Ungu skáldin fóru til hans, hann las kvæðin þeirra og leið- beindi þeim. Hann sagði sumum að brenna kvæðin, hætta alveg eða byrja aftur á byrjuninni. Og ég held, að Sigurður hafi aukið mjög gæðakröfurnar í listum og reyndar líka í stjórnmálum. Hann varaði menn við að flækjast í einhverri óraunhæfri ofsatrú — bæði til hægri og vinstri. Það var hægt að tala við Sigurð um alla hluti, og menn fóru fullir af áhuga og siðbótarhug af fundi hans. — Þið Sigurður og fleiri sameinizt gegn Jónasi frá Hriflu, eins og frægt varð. — Já, við lentum í smástyrjöld við hann og menn hans. Jónas vildi stjórna listinni í landinu, en skrifaði og gerði ýmislegt, sem lista- menn gátu alls ekki sætt sig við. Og úr þessu urðu hörð átök. For- ystuna höfðu Sigurður Nordal, Tómas og Jóhann Briem, en ég var eins konar sendill hreyfingarinnar. Jónas var mjög harður andstæð- ingur, og ýmsum þótti hann misbeita valdi sínu. Hann var friðlaus umbótasinni og skipulagssnillingur — en kunni sér ekki hóf. LISTIR OG LISTAMENN. — Þar sem við erum farnir að ræða um listina og stjórnmálin, langar okkur til að spyrja þig að einu: Hvers vegna heldur þú, að svona margir listamenn á íslandi hafi gerzt vinstrimenn? — Ég held, að þeir hafi hrifizt af einlægni og heiðarleika verka- mannanna, sem ekki höfðu tækifæri til þess að olnboga sig í gegnum 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.