Eimreiðin - 01.07.1975, Qupperneq 12
EIMREIÐIN
tilveruna eins og við hinir — þó að þeir hefðu auðvitað margir farið
alveg eins að, ef þeir hefðu haft tækifæri! En sannleikurinn er auð-
vitað sá, að allir listamenn eru einstaklingshyggjumenn. Mér finnst
ég alltaf vera að tala við hinn mesta kapítalista eða verðandi kapítal-
ista, þegar ég tala við listamann, enda sjáum við það á miklum rit-
höfundum, listmálurum og síðast en ekki sízt kvikmyndaleikurum,
að engin takmörk eru fyrir því, hvað þeir geta hrófað upp af hé-
góma í kringum sig, alveg eins og við kaupmennirnir. Þau hjónin
Burton og Taylor, sem eru mjög góðir og merkir listamenn, skemmta
sér t. d. við að kaupa gimsteina fyrir fé, sem gæti nægt til að fæða
heila þjóð. Kjarval gat líka átt það til að taka leigubíl upp í sveit dag
eftir dag, mála þar allan daginn og láta leigubílinn bíða eftir sér. Og
stundum pantaði hann annan leigubíl, svo að bílstjórinn hans hefði
félagsskap. Það er hollt og skynsamlegt að vilja verða efnaður og sjálf-
stæður, og það vilja listamenn engu síður en aðrir. Það var einhver
konan á kvennafundinum fræga á dögunum, sem talaði um „eigna-
gleði“ í ræðunni sinni. Eg hafði aldrei heyrt þetta orð áður, en vissu-
lega lét það vel í mínum eyrum, og hef ég þó aldrei verið duglegur að
safna í sjóði. Ræðukonan sagði, að eignagleði væri heilbrigð. Og ég
held, að búið sé að hrekja manneskjuna burt frá sjálfri sér, þar sem
eignagleði er gerð tortryggileg.
Kommúnistar hafa skilið, að það eru engir menn eins
miklir áróðurssnillingar og listamenn né jafnframtakssamir, ef
þeir trúa á málstað sinn. En þeir eru bundnari samvizku sinni en
aðrir menn og eru þeir einu, sem veitt geta stjórnmálamönnun-
um nauðsynlegt aðhald. Það er gífurlegur styrkur að hafa listamenn-
ina sín megin. Og stjórnmálamenn, sem skera upp herör gegn lista-
mönnum, eru í raun og veru að fremja sjálfsmorð. Þess vegna er að-
eins eitt ráð til fyrir framsýna stjórnmálamenn: Þeir verða að skilja
listamennina og láta þá fá frið og frelsi til að tjá hug sinn. Listamenn-
irnir líta auðvitað fyrst og fremst á sig sem listamenn, en ekki sem
málsvara einhverra stjórnmálamanna. En hefnd þeirra er skæð. Sjálf-
stæðismenn hafa enn ekki gert sér grein fyrir því, hvað það er mikil-
vægt að hafa listamennina sín megin — miklu mikilvægara á íslandi
en annars staðar. Listamennirnir eru langvoldugasta afl samfélagsins.
Það voru þeir, sem komu Adolf Hitler fyrir kattarnef. Og það voru
listamennirnir, sem lögðu Jónas frá Hriflu að velli, pólitískt. Og ég er
sannfærður um, að kommúnisminn bíður að lokum ósigur fyrir list-
inni og skyldum öflum, eins og trúarbrögðum.
188