Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1975, Side 32

Eimreiðin - 01.07.1975, Side 32
EIMREIÐIN hvað þá að það sé að yfirlögðu ráði okkar. Ef til vill má greina þess- ar hrapallegu hugsunar- og umræðuvenjur okkar frekar sundur. Það skal hér reynt. Það væri afar þægilegt og nytsamlegt, ef unnt væri í fáum orðum að gefa sæmilega skilgreiningu á hugtakinu stjórnmál eða segja að öðrum kosti, hver helsti tilgangur stjórnmála sé. Því miður er slík skilgreining eða tilgangslýsing óviðráðanleg, þegar fjallað er um stjórn- mál, alveg eins og þegar fjallað er um heimspeki eða lögfræði, eðlis- fræði eða hagfræði. Vilji menn fjalla um þessar greinar í heild, verða þeir að láta sér nægja að sníða þeim lýsingar, sem falla að umræð- unni hverju sinni, en eru ófullnægjandi eða rangar utan þessarar um- ræðu. í því sem hér fer á eftir nægir vonandi að gera ráð fyrir, að tilgangur stjórnmálanna sé að minnsta kosti tvíþættur og að meðal þessara tilgangsþátta séu þeir tveir, sem nú verða taldir: a) að setja þjóðfélaginu starfsreglur eða starfsleiðbeiningar, sem gilda eiga um langan tíma og oft um alla framtíð; b) að finna eða búa til aðila til að standa fyrir og hafa á hendi fram- kvæmdir, þjónustu eða framleiðslu í þágu þjóðarheildarinnar. Þótt þessi þáttaskipting sé gróf og þættirnir svo samtvinnaðir, að varla megi nefna nokkur dæmi stjórnmálaviðfangsefna, sem ekki falla að lokum undir báða þættina, er engu að síður nauðsyn að hafa ein- hverja slíka þáttaskiptingu í huga. íslendingar beygja sig ekki undir þessa nauðsyn. Ástæðan fyrir því, að slíka greiningu verður að við- hafa, er, að a) og b) höfða í mismunandi mæli til ólíkra þátta mann- legs eðlis. a) höfðar til vilja, en b) til vits. Til þess er ætlast, að undir þátt a) sé felld lagasetning um sam- skipti þegnanna sín á milli og gróf stefnumótun til langs tíma. Þátt- ur a) höfðar því til óska og vilja þjóðarinnar. Hann höfðar til rétt- lætis, samræmis, siðgæðis og til þess, hvernig veðjað skuli löngu fyrir veðreiðar. Hins vegar er til þess ætlast, að undir þátt b) séu felldar ákvarðanir um einstakar aðgerðir, sem markast af ásetningi sprottn- um frá þætti a), en eru þó einkum háðar ytri aðstæðum, sem hafa staðreyndagildi. Þáttur b) höfðar því fyrst og fremst til skynsemi og þekkingar. Hann höfðar til skipulags, hagkvæmni, verklegra gæða og tæknilegs undirbúnings. Þessar hugmyndir má skýra með því að benda á, að vilji og ásetn- ingur lúta greinilega öðrum rökrænum lögmálum en sannindi og þekking. Það má með nokkrum sanni segja, að lög séu eða hafi verið vilji einhvers, sem hefur nægilegt vald. Þess vegna er eðlilegt að líta 208
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.