Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1975, Page 111

Eimreiðin - 01.07.1975, Page 111
ÉIMREIÐIN urs fyrirboða, þá hljóðna veístólarnir. Það leynir sér ekki að átök eiga sér stað. Vonlaus barátta við vélarn- ar . . . Skytturnar í vefstólnum sneru þráðunum í hreinu æði, smurðir stál- bitar, hraðar en auga á festi, aftur og fram . . . Leikföng' myrkrahöfðingj- ans . . . Snerust eins og skoppara- kringlur í mjúkum, smurðum slíðr- um. „Gaman væri að eiga svona leik- fang . . Um leið og ein grípur þráðarendann og snarsnýst hina leið- ina, þá hefur önnur þrifið nýjan enda, tilbúin að snúa sér sama veg til baka. Skyttur djöfulsins, að innan gerðar úr stáli en viði að utan og allra yst úr gljáfægðri valhnotu. Eineygð skrímsli . . . Pegar risastórar vélarnar sem knýja vefstólana hætta störfum, þá flýr sálin úr skyttunum og þær sofna. En niðurinn í þeim heldur áfram að suða fyrir eyrum mér allt matarhléið. Þær tala, líka. Tala hver við aðra, þó ég skilji ekki tungumál þeirra. Recep verkstjóri skilur þær hins veg- ar. Stundum rekur hann nefið út í loftið og gónir upp í þakið. Þá er hann vafalaust að hlusta á skytturn- ar. Um leið og hann þrýstir á rofann hefst samtal þeirra . . . Hvað skyldu þær vera að tala um? Hvað skyldu þær vera að segja spólufylli gulra, grænna, svartra, hvítra þráða? Ég skil ekki tungumál þeirra. Raddir þeirra hljóma úr fjarlægri, framandi veröld. „Klíkkítíklakk . . . klíkkítílakk . . . klakk, klakk . . “ Óskiljanlegt, fyrir mér eingöngu niður. Niður sem hækk- ar smám saman og sækir í sig veðr- ið, þröngvar sér inn um eyrun á mér og inn í höfuðið og þrýstir á heil- ann. Rétt um það bil sem niðurinn er hættur að haía þessi áhrif og far inn að dvína, þá ar matarhléinu lok- ið og við hefjum vinnuna á nýjan leik. Eineygð, fægð, hál skrímsli snú- ast aftur og fram og fram og aftur. „Aftur og aftur . . Eintóna, óslit- ið, þreytandi. Allt í einu birtist fólk að baki vef- stólanna, sem fylltu salinn svo vart var unnt að smokra sér milli þeirra. Ayhan hlær, sviptir af sér rauðum treflinum sem nún hefur vafið um höfuðið á sér. Augun í henni eru stór og brún. „Eða svört. Ég man það ekki lengur.“ En hún er mittismjó, á því leikur enginn vafi. Mikil um mjaðmirnar og fæturnir holdugir. Ekki nóg með það, þeir eru náhvítir að auki. Það liggur við að þykkir brúnir sokkarnir bresti utan af þessum fót- um hennar. Að baki vefstólanna birtist fólkið. Ísmí, þrettán ára að aldri, ári eldri en ég. Ísmí. Hvað ég varð hissa þeg- ar ég heyrði fyrst þetta nafn hennar, sem í rauninni þýðir ekki annað en „nafnið hennar“. Ljóshærð með tíkar- spena. Vafðir rauðum, gömlum og snjáðum borðum sem löfðu alla leið niður á nýþroskuð brjóstin. Þreytt. Sigursælar hendurnar í styrjöldinni við hrekkjóttar Ivkkjurnar. Sigurlaun- in? Ekki önnur en þau að þræðirnir hafa litað á henni höndina. Fólk á bak við vefstólana . . . Zanil, með húfuna út á hlið, há- vaxinn og grannur, sveigður eins og bogi. Brátt mundi hann rétta úr sér. Því hann bograr alltaf yfir skyttun- um. Eftir matinn og sígarettuna mundi hann hverfa bak við vefstólinn sinn með átta eða tíu keilur (spólur?), mjó- slegnar keilur festar í toppinn. Þá biður hann Ismí, sem bæði aðstoðar hann og Ayhan við vélarnar, um glas af vatni titrandi röddu rétt eins og hann væri gráti næst. „Ísmí, í guðs- bænum . . .“ Síðan mundi hann reyna að koma auga á Nevin sem vinnur 287
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.