Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1913, Blaðsíða 3

Ægir - 01.01.1913, Blaðsíða 3
M Á N A Ð A R R I T F I S K I F J E L A G S í S L A N D S 6. árg. Reykjavík. Jan. og Febr. 1913. Nr. I og 2. Yfirlit yfir árið 1912. Það niá yfirleilt segja að árið 1912 hafi verið fremur hagstætt fyrir þá, sem fiski- veiðar stunduðu hjer við land, hæði á botnvörpuskipum, þilskipum, mótorbátum og opnum bátum. Verð aflans vor nokk- uð minna en rnenn höfðu gert sjer von um, einkum var tilfinnanlegt verðfall á Iifur og hrognum, frá því sem hafði verið árið áður, þar sem lifur var í 12—15 a. pt. 1911, en þetta ár að eins 8—10 a. — Hrogn komust 1911 upp í 35 kr. tunnan hæst, en 1911 að eins 10 kr. og sumstað- ar minna. Fiskverðið var svipað og árið áður, og þó mátti það heita fremur merki- legt að það skyldi ekki verða lægra, þar sem Norvegsaílinn varð x/s meira en áður, og hafði því eðlilega þau áhrif á verð á lifur og hrognum, að þessar afurðir fjellu svo mjög i verði. En hvað fiskveiðum viðvikur, þá hafði kolaverkfallið mikla á Englandi þau áhrif, að framleiðsla og fram- boð hjelst nokkurnveginn í hlutfalli hvað við annað, þar sem mörg botnvörpuskip urðu að hætta um sinn af þeim ástæðum. Síldveiði reyndist og góð í snyrpinætur fyrir Norðurlandi, og verðið fyrir aflann Yarð einnig' golt, rniklu betra en um mörg ár áður, og má að nokkuru leyti þakka það síldarmatinu, sem er farið að sýna á- hrif sín. Mótorbátum hefir fjölgað á árinu alstað- ar nokkuð, en mest við Faxaflóa og í Vestmanneyjum. Frá Vestmanneyjum fisk- uðu 65 bátar á vetrarvertið, og var það 15 íleiri en árinu áðnr. Enn fremur bætt- ust við 8 mótorbátar sem stunduðu veiði við Faxaflóa, eða 20 alls. Hvað afiast liafi alls á mótorbáta eg opna báta við landið, er ekki unt að segja með vissu, sízt nú, en þegar gætt er að því, að eftir Landshagsskýrslunum fyrir árið 1909, er áætlað að aflinn hafi alls numið um 12 milj. fiska, þá má óhælt fullyrða, að aflinn umliðið ár hafi orðið alt að 15 milj. Þilskipaveiði hefir heldur farið hnign- andi þetta ár, en þá fiskuðu frá Faxaflóa á vetrarvertíð 37 þilskip sem öfluðu yfir þann tírna 2,200 þús. fiska. Nokkuð færri skip fiskuðu yfir sumarið, og aflinn frem- ur rir, bæði bjer og við Vestfirði. 16 botnvörpuskip fiskuðu þetta ár, og voru gerð út af íslendingum og öfluðu yfir vetrarvertíðina 3 milj. fiska, þar fyrir ut- an lögðu 13 botnvörpuskip afla sinn hjer upp, sumpart seldu hann, eða lögðu liann á land til verkunar. 4 ný botnvörpuskip voru bygð þelta ár, og auk þess keypt 2, og má það heita góð viðkoma. Hvað allur aflinn nemur miklu að tölu hjá öllum íslenzka fiskiflotanum, er ekki að svo stöddu hægt að* segja; enda verður sú tala ónákvæm og óáreiðanleg, hvenær sem hún kemur í dagsins Ijós, sem fyrst má gera ráð fyrir að verði $915, ef eítir vanda lætur, og er það illa farið, en eftir lauslegi'i ágizkun, bygðri á mjög sennileg- um upplýsingum, verður hún þannig:

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.