Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1913, Blaðsíða 9

Ægir - 01.01.1913, Blaðsíða 9
Æ G I R 7 funding, af því að það hindrar það tap sein lilýzt af því að geyma matvörur í óhreinu lofti. Hvorl sem það er grænmeti, kjöt, fiskur, mjólk, smjör eða egg, þá er hægt að halda því óskemdu lengri eða skemri tíma með ózon, og er sem sagt ómctanlegt að sleppa við að nota alls konar meira eða minna skaðleg efnalyf. Til þess að mjólk og smjör geymist vel þarf ekki að hafa ann- að en ózon-tæki á smjörbúinu, eða þar sem mjólkin annars er geymd. Til þess að vera viss um að drepa sótlnæmi sem kann að vera í mat, þá má hella yfir hann fljótandi ózon. Til þess að geyma egg er ózon ágætt með því að það svrir óloftið sem skemmir svo mjög á þeim bragðið og kemur í veg fyrir myglu í skurninum. Ef á að geyma kjöt og fisk lengri tíma, er ózon notað í sambandi við loftkælingu og þarf þá ekki að frysta matvælin. f öllum þeim verzlunargreinum sem fást við eitthvert nýmeti eða niðursoðinn mat, svo sem hjá kjölsölum og við niðursuðu á sætu mauki o. fl. Þó mundi ózon vera mikill húbætir. Ástand ózons. Að menn lengi voru i vafa um efnafræðislegt ástand þessa sýr- ingarefnis, kom af því að það var ómögu- legt að ná í ózon nema í svo smáum skömtum og nákvæm rannsóknvarð erfið- ari af því hvað efnið hefir sterkar verkanir. En það var þó þegar árið 1785 að efnafræðingurinn Van Marum lók eftir því, að súrefnið úr loftinu fjekk einkennilega lykt þegar rafmagnsneista var hleypt i gegnum það í pípu þar til gerðri og að ef efnið tók gljáann af kvikasilfri. Árið 1840 sýndi hinn frægi efnafræðingur Sehönbein að þetta lyktsterka elni, sem hann gaf nafnið ózon, gat skilið joð frá joðkalium og haft inörg önnur sýrandi á- hrif. En það var þó ekki fyr en 1860 að menn fundu að ózon er ekki annað en þjettað súrefni, og er það hinn enski efna- fræðingur Andrews sem heffir heiðurinn af þessari uppgötvun, og að það er sama hvaðan þetla efni kemur, það hefir einlægt sömu verkanir og ózon og er sem sagt ekki samselt af tveim eða fleiri frumefn- um, lreldur er að eins súrefni í breyttri mynd. Ózon er til í andrúmsloftinum í fremur litlum rnæli. Líklega myndast það þar af rafmagnsverkunum loftsins í þrumu- veðri, þegar vatn gufar upp, (einkum salt- vatn t. d. i brimi) og svo af verkunum jurtanna á loftið. Ózon myndast líka þar sem sólin skín á skýin.. Með því að ózon er þá einlægt í loflinu, einkum yfir sjónum og á háfjölluin, þá er það með rjeltu nefnt »hið sótthreinsandi efni náttúrunnar«. Það gerir loftið holl- ara og meira hressandi fyrir andardrátt- inn um leið og það drepur líka skaðleg efni, sem streyma út í það frá alls konar pestaruppsprellum. Ózon finst bæði í sveitalofti og þó eink- um við sjóinn, en i bæjum er lítið eða ekkert af því, því að ýms lífvæn efni, reykur, brennisteinseíni og önnur óhrein- indi sem við öndum að okkur, eyða ózon- inu. Væri nú aftur á móti nóg af ózon þá yrðu óhreinindin að víkja. Sem áðar áminst hefir ózon mjög svo skarpa lykt sem súrefnið hefir ekki, og þarf þvi ekki milcið af því til þess að finna það með þeffærunum. Efnið hefir þá sterkustu sýringarhæfileika sem menn þekkja og kemur það af því að þriðja atomið sem mólekýlið er samsett af, er mjög laust í sambandinn. Breytingin á súrefni i Ózon er táknuð með líkingunni 02+0=08, og það er einmitt þetta þriðja viðbótaratom sem á svo hægt með að losna frá ózoninu og ganga í sainband við önnur efni. Þess vegna hreinsar það loft- ið svo vel. Það er eitt hið sterk-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.