Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1913, Side 5

Ægir - 01.01.1913, Side 5
ÆGIR 3 tæktin að garði; vesæld og vanþekking varð hlutskifti þjóðarinnar. Á viðreisnartímabilinu og alt fram á þennan dag hafa verslunarferðir aukist, enda hefir það og sýnt sig að þessu sam- fara hefir orðið efnaleg hagsæld sem hcfir staðið í rjetlu lilutfalli við auknar sigl- ingar. Það er svo margt í þessu litla þjóðfje- lagi sem er öðruvísi en það ætti að vera, menn tala um þessar misfellur sin á milli maður við mann í heimahúsum, nokkrir menn í sameiningu á fundum í þeim fje- lögum sem þeir eru meðlimir i, eða það er rætt í hinum opinberu dagblöðum. Alt þetta hefir og áhrif og þá þýðingu að þótt liægt fari og ekki sjáist augljós merki á skömmum tíma, miðar þó að því tak- marki að umbætur koma fyr eða síðar. Verslun og siglingar eða samgöngumál landsins, er eitt af þeim málum, sem nú um nokkurn tíma heíir verið áhyggjuefni margra hugsandi manna. Samningur sá er ráðherra Björn Jónsson gerði við 2 fje- lög dönsk 1909 var eins og menn muna hagstæður og jók til muna samgöngurnar frá því sem áður var. En þetta stóð að eins skamma stund. Þegar samningur þessi vargerður, stóðu farmgjöld öll mjög lágt, og verslunarfloti heimsins hafði livergi nærri eins mikið vörumagn að flytja eins og viðkoma skipa- stólsins óx; en þetta lók mjög miklum breytingum næstu ár á eftir. Peninga- vandræðin, sem voru mjög mikil á þeim árum bötnuðu að mun, og það jók við- skiftaveltuna aflur. Árið 1911 og síðasta ár hafa flutningsgjöld farið síhækkandi þrátt fyrir miklar skipabyggingar, og sem sumpart var að þakka því að peninga- vandræðin bötnuðu eins og áður er á- minst og sumpart því, ■— og þá aðallega — að stórar framkvæmdir voru hafnar í ýmsum löndum og nýlendum í öðrum heimsálfum er liflar liöfðu áður A’erið. T. d. eftir stjórnarbyltinguna i Kína 1911 var byrjað þar í landi á stórum fyrir- tækjum, sem þörfnuðust mikilla flutninga- tækja og þar sem skipastóll þar ekki full- nægði, þá drógst A'erslunarflotinn hjeðan úr álfu og frá Ameríku til þeirra staða er Hutningsmagnið var fyrir. Kolaverkfallið mikla á Englandi siðasta ár hafði og sínar alleiðingar, því þó flutn- ingar og ferðir teftust á meðan á verkfall- inu stóð, þá jókst það þeim mun meira á eftir, þar sem það stóð svo lengi yfir að kolabirgðir, sem áðnr voru miklar víðast hvar i heiminum, voru þá þrotnar, og þá þurfti að margfalda flutningsmagnið til þess að eignast sömu birgðir aftur. Þessar og fleiri orsakir hafa valdið hækkandi farm- gjöldum. Árið 1887 var mjög gott ár fyrir útgerðar- menn, betra en það varð á árunum 1898 og 1899, en komst hæst árið 1900 — þannig voru 4 ár góð fyrir útgerðarmenn, og átti Búaófriðurinn að nokkru leyti sinn þátt í því. Af hinum mjög miklu skipabyggingum og auknum siglingum á þessum árum stóð þetta ekki lengi. Árin 190S og 1909 fjellu farmgjöldin niður geysimikið, svo að mörg skip gálu engan flutning fengið og urðu að hætta. Með árinu 1910 fór smátt og smátt að lifna yfir siglingum aftur. Á áliðnu ári 1911 komust farmgjöld svo hátt, að þau liöfðu ekki komist eins áður um mörg ár, og þvi hámarki hafa þau haldið síðan, þrátt fyrir það þó skipasmíðastöðvarnar hafi aldrei bygt jafn mikið af skipum og einmitt þessi ár. En allur þessi íloti hafði nóg að starfa, því flutningsþörf heims- verslunarinnar var ávalt meiri en fram- boð á skipastól til flutninga. Við lok árs- ins 1912 var eins og llutningsþörfin yrði nokkuð minni, sem stafaði af stríðinu á

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.