Ægir - 01.01.1913, Qupperneq 14
12
ÆGIR
innar, i'byrjnn vertiðar, oftast eru pað vixillán
imi 3—4 mánuði. t*egar veiðunum er hætt er
gjalddagi vixlanna útrunninn, menn eru þá oft
neyddir til að sclja sildina fyrir það verð, sem
þeiin cr boðið í hana, þó alt of lágt sje. Væru
menn belur staddir efnalega, svo að þeir gætu
látið síldina liggja hjer já íslandi þangað til
eftirspurnin ykist, mundi verðið verða miklu
jafnara, og útgjöldin hjá mörgum ' hverjum
miklu ininni.
í Sviþjóð er góður markaður fyrir 100—120
þúsund tunnur af islenskri stórsild sje hún
góð vara. Berist meira að cr ástæða lil að
ætla að vcrðið lækki þess vegna. Mjer fanst
þvi nauðsynlegt að fara til fleiri landa, þar
scm jeg vissi að íslensk síld er borðuð svo
sem Rússlands, Þýskalands og Bandaríkja
Norður-Ameriku.
Farareyri liafði jeg ekki til allra þessara
landa og langt frá því. Rjcð jeg því af að fara
helst til Pýskalands þar eð jeg vissi, að von
var á auknum samgöngum þangað með beinum
ferðum til Iíamhorgar frá íslandi. Sömuleiðis
vissi jeg að góðar horfur voru með markað
fyrir islenska stórsild þar, 1906 og heiir inn-
fluttningurinn aukist siðan, en því miður hefi
jeg ckki fengiö fregnir af verðinu þar siðan,
nema af brjefum og sögusögn rnanna, seni ekki
er alljend á að byggja.
Jeg set hjer útdrátt úr markaðsskýrslu frá
Haniborg er í Hollenska blaðinu: »De Haven-
bode» 15. Aug. 1906 og geta menn því af þvi
sjeð, að horfurnar voru þá ekki slæmar fyrir
íslensku síldina í Hamhorg.
Hamborg 11. Aug. 1906 --------Verð á góðri
skoskri sild var þessa viku:
»Large Fuil« 36—37 Mörk pr. tunnu.
Minni tegund 32— 34 — — —
Fulls: 29-31 — — —
Meðal slærð 26—29 — — —
Matics: 20—25 — — —
íslenska síldin scm kom frá Hjaltlandi* seld-
ist á 40 mörk tunnan, sildin er stór en ekki
feit.
Hollendingar buðu síld fyrir þetta verð:
Príma Valla: 36—37 mörk.
— Matjes: 24—» — 2 mörkum hærra
í Þýskum tunnum. Ágætistegund var ekki á
boðslólum. Pýsk síld: Agætistegnnd: 40—41
mark. prima 36—37 mörk.
Að likindum hefir það verið síld, sem veidd var af
Skotum, sem árið 1906 höfðu beikistöð sina á Hjaltevri
við Eyjafjörð og veiddu með hringnótum.
Um líkt leyti eða 16. Aug. 1906, var íslensk
síld seld í Bergen i Noregi fyrir 16 kr. tunnan
áfylt.
Jeg ásetti mjer því að fara til Þýskalands, til
þess, að reyna að komast eftir hvernig horf-
urnar væru þar nú.
Hamborg.
Pangað kom jeg 13. Desember. Varð jeg
samferða dönskum manni frá Kaupmannahöfn,
Peter Andersen að nafni. Er hann fjelagi
Chr. Fr. Níelssens, sem mörgum cr að góðu
kunnur, frá versiunarferðum hans utn ísland.
Reka þeir umboðsverslun og liafa aðalskrifstofu
sína í »Kvæsthusgade« 3, Kbh. Hafa þeir fjel-
agar útibú í »Klostcrsstrasse« 24—26 í Ham-
borg. Andersen var mín önnur liönd þarna i
Hamborg og túlkur mínn þegar jeg þurfti.
Töluverður markaður er i Hamborg fyrir
smásild. Var mjer sagt, að keyptar væra þar
árlega svo tugum þúsund tunna skifti. Mundi
sjálfsagt vera hægt að selja þar 50—60 þúsund
tunnur árlega ef sildin væri góð vara, — fyrir
bærilegt verð. Síldin má vera af mismunandi
stærð. frá 20—90 stk. i hvert Kg.
Er það lík stærð og á sild þeirri, sem á
hverju ári gengur inn á hvern fjörð hjer vest-
an og norðan lands, en ekki hefir verið notuð
til annars en lítils liáttar til beitu eða þá á-
burðar, og þá seld svo ódýr að tæpast svarar
kostnaði að veiða hana. Sem dæmi má nefna
að á Akureyri voru veiddar nokkur hundruð
tunnur í Aug. rnánuði i fjmra haust, sem selt
var fyrir 0,75 1,00 kr. tunnan. Var þá auðvell
að afla svo þúsundum tunna skifti með litilli
fyrirhöfn. Sje þessi smásíld nokkurnveginn vel
feit, er litill vafi á, að þar er um stórkostlega
auðsuppsprellu að ræða fyrir landsmenn, ei'
hún er vcrkuð á þann hátt, sem þjóðverjar
vilja hafa hana.
Smásíldin, sem jeg sá i Hamborg og Altona,
var keypt á 18—26 mörk lunnan, 105—110 Rg.
netto. Hún er verkuð þannig að hausinn er
skorinn af henni og hún slægð svo að öll inn-
ýfli úr henni eru tekin burtu. Er hún svo
lögð i tunnurnar, þann veg, að sporðurinn snúi
inn að miöju tunnunnar en hnakkinn út að slöf-
uiium. Sildin á að liggja hálf ílöt, svo að kvið-
urinn viti dálitið meira upp en hryggurínn.
Er fyrstu röðinni raðað i hring með neðri
botninum og næsta hring nokkuð innar, svo
að sporðarnir á sildinni i ytra hringnum voru