Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1913, Qupperneq 26

Ægir - 01.01.1913, Qupperneq 26
24 Æ G I R Retri landhelgisvörn kveður við allstaðar þar sem lalað er ura sjáfarútveginn, einkum raeð tilliti til mótorbáta og opinna báta, og þó maður tali við botnvörpuskipa skipstjórana ís- lensku, þá verður viðkvæðið það sama. Þeir óska þess, að landstjórnin geri betri gangskör að því að verja landhelgina fyrir þeim aragrúa af útlendum botnvörpuskip- um sem árlega er að veiðum í landhelgi við ísland. í viðtali við einn mikílsmetinn skipstjóra og útgerðarmann, Ijet hann þess getið, að landhelgisvörnin, eins og hún er nú, væri alveg ófullnægjandi og gæíi mönnum dag- lega tilefni til að sannfærast um, að lögin i þessu tilliti væri að miklu leyti dauður bókstafur, sem lílið eða ekkert væri tekið tillit til: Oft væru tugir af útlendum skip- um i landhelgi í nægum tiski, og þá væri óverjandi fyrir islenskt botnvörpuskip að bjarga sjer ekki lika; og einmitt yíirgangur útlendinga við Island, hvetur þá fiskimenn íslenska sem sörnu veiðiaðferð stunda, að brjóta lögin líka, þrátt fyrir þó þeir sjeu þess meðvitandi, að með því geri þeir sín- um eigin löndum oft og tíðnm stórljón, bæði á veiðarfærum og veiði, og haíi sjálíir í raun og veru lítinn ágóða af því. Það má sjá það víða í blaðagreinum hve þetta mál vekur mikla athygli, ogþurfli bráðra bóta við. Bæði hefir »Lögrjetta« birt greinar um þetta, eftir mann á Arnar- íirði og eins grein lir. Edilons Grímssonar hjer að framan, það er i báðum tekið í sama strenginn. Við sunnanvcrðan Faxaflóa hefir þegar komið lil tals, að leyta til hins opinbera og eiustakra manna um peninga framlög til þess að Iialda úti mótorbát í sunnan- verðurn ílóanum, að minsta kosti þann líma ársins sem mest er um botnvörpu- skip þar syðra. Fiskifjelagsdeildirnar þar ætlu að berjast fyrir þessu máli. Sljórn Fiskifjelagsins hefir og haft þetta mál til meðferða, og mun það verða eitt meðal þeirra mála er stjórn þess mun leggja fyrir Fiskiþingið til athugunar. Magnús Magnússon kennari, einn af eig- endum botnvörpuskipafjelagsins ))AIliance«, Ijet þess gelið á síðasta stjórnarnefndar- fundi Fiskifjelagsins, að ej til samskota kœmi í þeim tilgangi að luilda úti bát til slrandgœslu, hvort heldur vœri til að verja meira eða minna svœði við landið, mundi fjelagið y>Alliance« leggja af mörkum alt að 200 kr. í þeim tiigangi. Slíkt er rausnarlega gert af íslenskum botnvörpuskipaeigendum að taka svo í þetta mál, og er líklegt að aðrir mundu taka sjer þetta til eftirbreitni. Pöntnn á stcinolíu. í tilefni af synjun Stjórnarráðsins um leyfi til Fiskifjelagsins um einkasölurjett á steinolíu var haldin fundur með meðlim- um fjelagsins i Bárubúð 1. febrúar. Eftir nokkrar umræður var samþykt svohljóð- andi tillaga frá Ólaii Björnssyni ritstjóra: »Fundurinn felur stjórn Fiskifjelagsins að bindast fyrir því, að panta einn stein- olíufarm fyrst um sinn til reynslu, svo framarlega sem nægilegar pantanir fást með fyrirframgreiðslu og steinolían fengist hjer með vægara verði en nú«. Kaupendiir ,Ægis‘ cr u áinintii1 um að seitda „Fiskiíjelagiim46 borgun fyrir biaðið Iiid fyrsta. Eius og menu sjá á íyrstu síðu blaðsins, er gjalðdagí fyrir liverí ár 1. jíilí, og liann er þegar liðinn. Prentsmiðjan 6nlonl)org.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.