Ægir - 01.03.1923, Síða 13
ÆGIR
35
í þessu sambandi voru allir mótor-
báta-formenn, sem á fundinum voru,
10 að tölu, beðnir að hvetja háseta
sína til þess aö gjörast meðlimir fé-
lagsins.
7. Aflaskýrslur. — Um þær urðu tölu-
verðar umræður. Las Bjarni Eggertss.
kafla úr bréfi forseta Fiskifélags ís-
lands, þar sem hann brýnir fyrir
mönnum nauðsyn á söfnum slíkra
skýrslna. Voru menn á einu máli
með það, og samþyktu þessa tillögu:
Fundurinn samþykkir að formenn
gefi áreiðanlegar aflaskýrslur i lok
hvers mánaðar, og sendi stjórn deild-
arinnar.
8. Afurða sala. Sig. Guðmundsson vildi
koma því skipulagi á hana, að einn
maður befði hana á hendi, að öllu
leyti fyrir alla bátana. Bjarni Eggerts-
son var hugmyndinni hlyntur, en
Kristján Guðmundsson siður. Eugin
ályktun tekin.
9. Bryggjumálið var rætt á víð og dreif
án þess að nýjar upplýsingar kæmu
fram.
10. Rá var lesið upp rækilegt bréf frá
foiseta Fiskifélags lslands herra Jóni
Bergsveinssyni. Útaf efni þess voru
eftirfarandi tillögur samþyktar i einu
hljóði.
a. Fundurinn samþ. að skora á al-
þingi að það veiti Fiskifélagi ís-
lands jafn háan styrk og Búnað-
arfélagi íslands.
b. Fundurinn skorar á Fiskifélag ís-
lands að hlutast til um það, að
vörur þær, sem aðallega eru not-
aðar til fiskiveiða, svo sem salt,
olia og kol, séu ekki gerðar að
sérstökum tekjustofni fyrir ríkis-
sjóð.
11. Hafnarmál. Frá stjórn deildarinnar
kom tillaga:
Fundurinn skorar á Fiskifélag íslands
að gera alt sem i þess valdi stendur,
til þess að hrinda í framkvæmd hafn-
argjörð austanfjalls, sem fundurinn á-
lítur eitlhvert stærsta framfaramál alls
landsins. —
Var tillagan samþykt. með samhljóða
atkvæðum.
12. Að lokum var samþykt með öllum
atkv. þakklæti til stjórnar Fiskifél. ís-
lands fyrir ágæta samvinnu á liðnu ári.
Stjórn deildarinnar hefir sín á milli rætt
ýms sjómannamál, fram og aftur, og skal
hér skýrt frá skoðun hennar á nokkrum
málum, sem ekki voru tekin til umræðu
á aðalfundi deildarinnar 12. þ. m.
1. Fjórðungsþing. Ætlun okkar er sú, að
fjórðungsþingin nái ekki fyrirhuguðum
tilgangi, og álítum að í stað þeirra —
ef þau væru lögð niður — hefði Fiski-
félagið i þjónustu sinni sem allara fjöl-
hæfastan starfsmann á sjómannasvið-
inu, jafnan til taks, ef deildir óskuðu
leiðbeiningar hans og ráða, og myndi
sá maður með eigin sjón og kynn-
ingu, vinna félagsskapnum og eiu-
stökum deildum miklu meira gagn,
en fulltrúar fjórðunganna vinna nú.
Mundu þá jafnvel Fiskiþingsmenn
geta, með breyttum lögum fengist úr
deildunum eftir félagatölu t. d. 1. þingm.
fyrir hverja 100 meðlimi.
2. Vélskóla álítur sljórnin nauðsynlegan,
en með því skilyrði, að honum væri
þá skift niður í fleiri deildir, þann-
ig að engin þyrfti lengur að dvelja
þar, eða kosta til framyfir það, sem
þörf krefði, alt eftir þvf hvaða vél
nemandi hyggðist að starfrækja.
Annars má með góðum árangri láta
námskeið með góðum kennurum full-
kornlega nægja um kenslu á smábáta
mótora upp að 12 tonna. Sú er reynsla
okkar Eyrbekkinga.