Ægir - 01.03.1923, Blaðsíða 18
40
ÆGIR
Skýrsla til ríkisstjórnarinnar
frá Pjetri A. Ólafssyni.
i.
Skýrsla til stjórnarráðs íslands um erindi P. A. Ólafssonar
til að rannsaka horfur í Suður- og Mið-Ameríku
fyrir sölu á íslenskum fiski.
P. t. Santos, 6. des. 1922.
Strax og jeg hafði tekist þessa ferð á hendur þóttist jeg sjá fram á,
að ferðin kæmi að litlum notum, ef ekki væru höfð með sýnishorn. Ekki
eingöngu til að sýna þá vöru, sem hægt væri að bjóða, en jafnframt til að fá
eigin reynslu fyrir, i hvaða ástandi hún kæmi fram svo langa leið og hvernig
hún þyldi hitann. Svæðið, sem ætlast var til að leitað yrði fyrir sjer á, er frá
30. ° nbr. til 40. ° sbr., á hjer um bil heitasta svæði hnattarins. Eftir að hafa
ráðgast um málið við stjórnarráðið, gerði jeg ráðstöfun til, að eftirfylgjandi
sýnishorn yrðu send, í ýmiskonar umbúðum, sem að neðan tilfært, en vegna
þess að tíminn var svo naumur, var því miður ekki hægt að fá þetta útbúið
eins og maður hefði óskað.
Til Buenos Aires, Montevideo og Rio de Janeiro fóru sendingarnar nr.
1—10 með »Gullfossi« frá Reykjavík 3. sept., til umhleðslu í Englandi, en á 3
síðari staðina áttu þær að fara með »Gullfossi« frá Reykjavik 12. okt., og með
sömu ferð átti harðfiskurinn að fara á alla staðina, og klipfiskurinn til Nigeria.
Jeg lagði á stað frá London 19. okt. og kom til Rio de Janeiro 7. nóv.
Á leiðinni fjekk jeg mælingar á loft- og sjávarhitanum daglega, og var meðal-
talið þetta:
Lofthiti. Sjávarhiti.
um
Frá 19.-22. okt. á 51.—42. gr. nbr • 12,5 gr. C. 15 gr. C.
— 23.-26. okt. » 40.—26. — — . 20,5 — — 21
- 27.-31. okt. »21.-5. — — . 26 — — 26,5
— 1.- 6. nóv. » 0.—23. — sbr . 25,5 - — 27,5
-- 7.-30. nóv. í Rio de Janeiro min. .. max. .. • 17 gr. | .34-j | 24,5 meðalt.
- 1.- 5. des. í Sao Paulo min max . 13-| . 26,5- j | 21,0 —
Við komu mina til Rio tjáði danski sendiherrann mjer, að hann hefði
miðjan okt. fengið farmskírteinið frá íslandi upp á fisksýnishornin, en