Ægir - 01.06.1930, Page 11
ÆGIR
133
Vigu samkeppni útflytjenda tekst að
lækka verðið úr því, sem nú er, en víst
er það, að innflytjendum sem ekki eru
um leið útflytjendur, er enginn akkur í
því að verðið lækki, heldur þvert á móti.
Þeir óska að verðið sé sem stöðugast,
farandi í hækkunarátt.
Eg held að sumir hér búist við að
næsta sending af .Faxaflóafiski (fyrstu
sendingu kalla ég þær sendingar allar,
sem fara frá Islandi um þessi mánaða-
niót, allt fram til miðs júní) muni verða
seld fyrir 33/- cif., en ekki lægra og úr
því muni verðið fara hækkandi. í fyrstu
sendingunum mun Færeyjafiskurinn hafa
verið seldur sama verði og sá íslenzki.
Þeim til athugunar, sem fylgjast með
fiskverðinu i Noregi, vil ég endurtaka
það, sem ég áður hefi skýrt frá, að verðið
sem opinberlega er uppgefið í Noregi er
niiðað við nr. 1 ekki fob., heldur afhent
við geymsluhúsdyr kaupanda og ópakk-
en metið. Á kaupandann (þ. e. út-
Ayfjandann) leggst því bæði útskipunar,
Pökkunar og nýr matskostnaður, (þó
lítill sé) sem ekki leggst á útflytjanda ís-
lenzka fisksins. Nú er fragtin frá Nor-
egi talsvert lægri en frá íslandi, en ekki
mun sá mismunur nema meiru en áður
nefndum umframkostnaði útflytjenda
norska fisksins.
Samkvæmt markaðsfréltum frá óporto
(nú síðasta dags. 20. þ. m.) hefur neyzl-
an þar undanfarnar 3 vikur verið kring-
nni 7000 pakkar á viku. 19. maí voru
birgðirnar þar áætlaðar kringum 40000
pakkar.
Síðasta skýrsla frá Lissabon, dags. 18.
maí, segir að neyzlan stðasta hálfa mán-
nðinn hafi verið þar kringum 20000
pakkar og birgðirnar 17, maí að eins
verið kringum 3000 pakkar. Á báðum
þessum markaðsstöðum eru menn rnjög
órólegir, einkanlega vegna mjög mis-
jafnra tilboða frá Noregi. í Óporto eykur
og kauptregðuna, að nú er sá fiskur um
það leyti að verða fullverkaður, sem
þangað (eða réttara sagt á stað þar ná-
lægt) var sendur óverkaður, bæði frá
Noregi og íslandi (frá íslandi með Bes-
segg, 650 tonn) og þarf því ekki að
kaupa annan fisk, meðan þessi er til.
Út af sölum til Portúgal af óverkuð-
um fiski vil ég taka þetta fram: Þar er
enginn neytendamarkaður fyrir óverkað-
an fisk og getur ekki orðið fyr en Port-
úgalar hafa kælihús fyrir fisk. Allur ó-
verkaður fiskur, sem þangað er sendur
er því verkaður þar, og þar sem verk-
unin þar er langtum ódýrari en bæði í
Noregi og á Islandi, spillir hann fyrir
kaupunum á fiski, sem verkaður er í
þessum löndum. Svo lengi sem ekki er
neytendamarkaður í Portúgal fyrir ó-
verkaðan fisk, álít ég þvi alveg skakt að
senda þangað óverkaðan fisk. Það sem
sent er þangað af óverkuðum fiski, mink-
ar aðeins magnið af verkaða fiskinum,
sem Portúgal getur tekið á móti. Hér er
því allt öðru máli að gegna en um söl-
una á óverkaða fiskinum til ítaliu, sem
er skakt að hata á móti, þvi óverkaði
fiskurinn, sem þangað er seldur, er að
mestu seldur á aðra markaðsstaði en þá,
sem vilja fullverkaðan eða labraverkað-
an fisk og- spillir því ekki fyrir sölunni
á þeim og reynist því þannig útvikkun
á markaðinum, sem okkur er alveg
nauðsynleg með okkar hraðvaxandifram-
leiðslu.
Þar sem enn er eklci farið að selja á
markaðinum frosna fiskinn, sem hingað
kom með s/s »Annfin«, get ég ekkert
sagt um þessa tilraun að svo stöddu.
Aðeins get ég sagt það, að ég hefi borðað
hann og fundist hanu ágætur og sam-a
hafa allir sagt, sem ég hefi talað við og
hann hafa smakkað.