Ægir - 01.06.1930, Síða 17
ÆGIR
139
lgd.) Á því svæði mætast álar frá Ame-
ríku og Norðurálfu og liggja lirfur í
kösum, en þegar straumarnir ná þeim,
skiljast lirfurnar að og þær sem ættaðar
eru frá Ameríku halda þangað, en hinar
til Norðurálfunnar. Nú hefur »Dana«
einnig fundið hrygningarstaði álsins í
Kyrrahafi og Indlandshafi á afarmiklu
dýpi, allt að 5000 metra.
Ungir sjóliðsforingjar og náttúrufræð-
ingar voru með prófessor Schmidt á
þessu merkilega ferðalagi, sem hefur gert
hann frægan mann.
Visindalegur árangur leiðangursins er
afarmikill og öllum þeim, sem riðnir
hafa verið á einn eða annan hátt við
hann, til mikils heiðurs.
Að nokkru tekið eftir »Vikingen«.
Björgunarbátur
sem ekki getur sokkið.
Skipaverkfræðingur Alfred Hansen,
Dani að ætt, fæddur i Vesturheimi, hefur
nýlega sýnt amerískum valdhöfum bát,
sem hann hefur fundið upp og er þannig
gerður, að hann getur ekki sokkið og
fyllist hann sjó, tæmir hann sig sjálfur.
Alfred Hansen segir, að bátnum geti
eigi hvolft og að hann geti afborið verstu
storma og stórsjói. Við tilraunir þær, er
gerðar voru, kom það í ljós, að báturinn
getur ekki farið af kjölnum og hafðialla
þá kosti, sem Hansen taldi honum til
gildis.
1 ameriskum blöðum er þess getið, að
kjörgunarstöðvar fram með Atlantshafs-
ströndinni, hafi pantað hina fyrstu
báta, sem smíðaðir verða eltir sýnishorni
Hansens og á að reyna þá frekar þar.
„Flensborg" í Hafnarfirði.
Þriðjudagsmorgun 10. júní s. 1. kl. 8.io
f. h, sá fólk frá óseyri reyk, er lagði
upp frá þakinu á hinu gamla skóla-
húsi. Bjó skólastjóri Ögmundur Sigurð-
son á efri hæð, en heimavistarherbergi
nemenda skólans, eru á hinni neðri og
eru þau mannlaus á sumrin.
Hafnfirðingum tókst með góðri fram-
göngu að slökkva eldinn, en þá var að
heita má, öll efri hæðin brunnin og
miklar skemdir urðu á því, sem bjarg-
að var af búslóð skólastjóra og sjálfur
fékk hann brunasár.
Flensborg mun hafa verið reist um
1816—17 sem verzlunarhús af hinum
svonefndu Flensborgurum. Þar voru
þeir frændur Johnsen frá Slésvik, Maack,
sem afkomendur á hér marga. Stúdent
Þorfinnur Jónathansson var þar lengi
verzlunarstjóri og til Flensborgar kom
kaupm. Jörgen Hansen, sem þá var
kornungur, ráðinn þar verzlunarmaður,
fór þaðan til Papóss, þaðan til Eyrar-
bakka og að lokum aftur til Hafnar-
fjarðar, þar sem hann rak verzlun lengi
og þar dó hann. Síðar keypti prófastur
Pórarinn Böðvarsson eignina og gaf hana
til skólahalds í minningu Böðvars sonar
síns, er dó nýorðinn stúdent. Kaupm.
I’orstdnn Egilsson byrjaði þar fyrstur
barnafræðslu og nutu hennar meðal ann-
ara Sigurður heitinn læknir í Búðardal,
Steingrímur heitinn Guðmundsson húsa-
meistari, bræðurnir sira Ólafur heitinn
Petersen, Tómas vegaverkstjóri, undir-
ritaður o. fl.
1. október 1882. byrjaði gagnfræða-
skólinn þar og voru fyrstir kennarar,
skólastjóri Jón Þórarinsson, Magnús
Helgason, þá prestaskólakandídat og rit-
stjóri Valdimar Ásmundsson og skipun
þeirra samþykkti landshöfðingi 22. des.