Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.06.1930, Qupperneq 23

Ægir - 01.06.1930, Qupperneq 23
Æ G I R 145 Áskorun til fiskimanna. Að tilhlutun stjórnar fiski- ogsjórann- sókna Danmerkur, hafa í vor verið merkt nokkur hundruð af þorski við Vest- manneyiar, á varðskipinu »Þór« og í vor og sumar verður væntanlega merkt eitthvað af fiski við austur og norðaust- urströndina. — Merkin eru af sömu gerð og áður: tvær svartar ebónít-tölur, festar saman með silfurvír, hvor sínum megin á kjálkabarð (tálnalok) fisksins. Finni menn merkta fiska, eru þeir beðnir um að senda merkin s e m allra fyrsl til skrifstofu Fskifélags íslands i Reykjavík eða til erindreka félagsins á- samt upplýsingum um : 1. Staðinn og dýpið þar sem fiskur- inn veiddist. 2. Daginn þegar hann veiddist. 3. Lengd fisksins í sentimetrum, frá snjáldursbroddi á afturrönd sporð- blöðkunnar (önnur mál eru óþörf). 4. Kyn fisksins (hængur eða hrygna). 5. Nafn og heimilisfang þess er veiddi eða hirti fiskinn. Gott væri og, ef kvarnirnar væru tekn- ai' úr fiskinum og látnar fylgja merkinu. — Fyrir hvert merki með umbeðnum upplýsingum, verða borgaðar 2 krónur. Ég vil fastlega skora á fiskimenn, að verða vel við þessari beiðni, og halda vel til skila öllum merkjum er þeir finna. Þessu hefur verið all-ábótavant undan- farið, en á því veltur að nokkurt gagn verði að þessum merkingum, sem eiga fremur öllu öðru að geta gefið upplýs- ingar um göngur fisksins. Fyrir hönd stjórnar fiski- og sjórann- sókna Danmerkur. Reykjavík, 17. maí 1929. Bjarni Sœmundsson. Þessi áskorun er hér endurbirt og skorað á fiskimenn að gera sitt ítrasta til að halda öllum merkjum tii skila, er koma í þeirra hendur. 7« 1930. Sjóveiki. »Cunardfélagið hefur skipað nefnd, er rannsaka á, af hverju sjóveikin stafi og hvernig bót verði ráðin á þessari leiðin- legu veiki. Nefndin hefur ferðast með »Aquitania«, unnið að rannsóknum sinum þar og hefur nú lokið störfum. Voru ýmsar tilraunir gerðar á 180 far- þegum er höfðu öll stig sjóveikinnar. Fyrir rannsóknunum stendur yfir- læknir félagsins, dr. Gwyne Maitland. Sérstök rannsóknarstofa (Laboratorium), var gerð á skipinu að eins i þessu augna- miði. Ein af mörgum tilraunum var sú, að láta farþega setjast á stól, sem fest var á þilfarið á undirlag sem snúa mátti, og var þannig útbúinn, að honum málti snúa og rugga, svo hreyfingar urðu líkar því, sem skips í stormi og stórsjó eru. Sá, sem tilraunir voru gerðar á, varsett- ur í stólinn, honum skipað að beygja höfuðið og siðan snúið í hring með miklum hraða. Oftast þurfti að snúa stólnum að eins fáa hringi er einkenni sjóveikinnar komu í Ijós; var þá maður- inn þegar tekinn úr stólnum og rann- sakaður nákvæmlega. Dr. Maitland lætur það álit sitt í ljósi, að hann og nefnin hafi orðið svo margs visari um veiki þessa, sem gefi sér beztu vonir um, að öruggt meðal gegn henni megi finna.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.