Skinfaxi - 01.02.2010, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2010
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Hafsteinn
Óskarsson, Kristinn Ingvarsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson, Kristín Hálfdánar-
dóttir og Óskar Þór Halldórsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og
verkefnisstjóri forvarna,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki
Kristín Sigurðardóttir, verkefnið Göngum
um Ísland
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Björg Jakobsdóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, meðstjórnandi,
Garðar Svansson, meðstjórnandi,
Ragnhildur Einarsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
Gunnar Gunnarsson, varastjórn,
Einar Kristján Jónsson, varastjórn.
Forsíða:
Arnór Atlason lék stórkostlega með íslenska
landsliðinu í handknattleik á Evrópumótinu
sem fram fór í Austurríki. Arnór skoraði 41
mark í átta leikjum í keppninni og vakti
framganga hans mikla athygli. Árangur
íslenska liðsins var stórkostlegur, en liðið
vann til bronsverðlauna á mótinu.
Á bls. 39 er rætt við Arnór Atlason.
Forsíðuljósmynd: Kristinn Ingvarsson.
Mörg spennandi og áhuga-
verð verkefni blasa við á þessu
ári. 13. Unglingalandsmót UMFÍ
verður haldið í Borgarnesi um
verslunarmannahelgina og mun
það draga til sín þúsundir kepp-
enda og gesta. Í Borgarnesi eru
allar aðstæður til fyrirmyndar en
uppbygging íþróttamannvirkja
fór þar fram í tengslum við Lands-
mótið sem þar var haldið 1997.
Framkvæmdaaðilar þurfa því að
ráðast í litlar framkvæmdir vegna
Unglingalandsmótsins núna.
Undirbúningur fyrir mótið er
þegar hafinn og munu Borgfirð-
ingar eflaust halda mótið af
miklum myndarbrag.
Eins og endranær stendur ung-
mennafélagshreyfingin fyrir ýms-
um verkefnum og má í því sam-
bandi nefna Frjálsíþróttaskóla
UMFÍ sem rekinn er í samvinnu
við FRÍ. Verkefnið Fjölskyldan á
fjallið og Göngum um Ísland hef-
ur verið endurskipulagt og verð-
ur rekið af miklum krafti á þessu
ári. Þátttakan í þessu verkefni hef-
ur verið mikil frá upphafi en nú
hefur vefsíða verkefnisins verið
uppfærð og færð í betri búning
sem og allar gönguleiðir.
Ungmennafélag Íslands hefur
ákveðið að gefa verkefnum á
sviði almenningsíþrótta aukið
vægi í starfsemi hreyfingarinnar í
því augnamiði að vekja fólk til
umhugsunar um mikilvægi hreyf-
ingar og hollra lifnaðarhátta.
Ástundun almenningsíþrótta
höfðar til allra aldurshópa og tek-
ur mið af sérhverjum einstaklingi,
hver stundar sína íþrótt á eigin
forsendum. Allra brýnast er að
sérhver einstaklingur finni íþrótt
sem hann getur stundað sér til
heilsubótar og ánægju.
Íslenska landsliðið í handknatt-
leik bætti enn einni rósinni í
hnappagatið þegar það tryggði
sér bronsverðlaun á Evrópumót-
inu sem fram fór í Austurríki í
janúar. Þessi árangur undirstrikar
að landsliðið er komið í hóp
bestu landsliða í heiminum í dag.
Þetta er í annað sinn í röð sem
liðið vinnur til verðlauna á stór-
móti í handknattleik, silfurverð-
laun á Ólympíuleikunum í Peking
2008 og nú á Evrópumótinu í
Austurríki. Íslenska landsliðið hef-
ur gegnum tíðina oft glatt hjörtu
íslensku þjóðarinnar og miðað
við aldurssamsetningu liðsins má
víst telja að svo verði áfram ef rétt
verður á spilum haldið. Það árar
ekki vel í íslensku efnahagslífi um
þessar mundir en árangur strák-
anna okkar í Austurríki færði þjóð-
inni gleði og kannski styrk og
eflingu í þeim erfiðleikum sem
hún stendur í.
Jón Kristján Sigurðsson
ritstjóri
Árangur sem færði þjóðinni
gleði og styrk
Ungmennafélag Íslands mun í sumar starfrækja
frjálsíþróttaskóla þriðja sumarið í röð. Aðsóknin að
skólanum í fyrra var mjög góð. Mest var hún í
Borgarnesi, en það námskeið sóttu yfir 40 krakkar.
UMFÍ starfrækir skólann í samvinnu við Frjáls-
íþróttasamband Íslands.
Litið er á skólann sem góðan undirbúning fyrir
þátttöku á Unglingalandsmóti. Krakkar, sem sótt
hafa skólann, hafa lýst yfir mikilli ánægju með það
sem skólinn býður upp á, en mjög hæfir og þekktir
frjálsíþróttamenn hafa leiðbeint eða komið við og
kennt krökkunum við góðan orðstír.
Í sumar verða námskeið víðs vegar um landið,
í Borgarnesi, á Laugum í Reykjadal, Laugarvatni,
Sauðárkróki, Egilsstöðum, í Mosfellsbæ, á Höfn í
Hornafirði og á Akureyri.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ
starfræktur þriðja
sumarið í röð