Skinfaxi - 01.02.2010, Page 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið
að gefa verkefnum á sviði almennings-
íþrótta aukið vægi í starfsemi hreyfingar-
innar, í því augnamiði að vekja fólk til
umhugsunar um mikilvægi hreyfingar og
hollra lifnaðarhátta. Ástundun almenn-
ingsíþrótta höfðar til allra aldurshópa og
tekur mið af sérhverjum einstaklingi, hver
stundar sína íþrótt á eigin forsendum.
Allra brýnast er að sérhver einstaklingur
finni íþrótt sem hann getur stundað sér
til heilsubótar og ánægju.
Ganga.is
Vefsíðan ganga.is hefur að geyma upp-
lýsingar um fjölda stutta og langra göngu-
leiða. Þar gefur einnig að líta fjöll sem
sambandsaðilar hafa stungið upp á í verk-
efninu „Fjölskyldan á fjallið“. Töluverðar
endurbætur á vefsíðunni hafa staðið yfir
að undanförnu. Helstu sundlaugum lands-
ins hefur verið bætt inn á síðuna ásamt
mynd og helstu upplýsingum um starf-
semina, s.s. opnunartíma. Þá hefur flest-
um golfvöllum landsins og upplýsingum
um þá verið bætt á vefinn. Sem stendur
er unnið að því að setja inn myndir af
göngum sambandsaðila inn á vefinn.
Verkefnum á sviði
almenningsíþrótta
gefið aukið vægi
Útfærsla á ganga.is
„Hættu að hanga! Komdu að synda,
hjóla eða ganga!“ hefst í byrjun sumars og
stendur yfir í 103 daga sem er jafnt og
aldur UMFÍ. Allir geta tekið þátt í verkefn-
inu óháð aldri. Hægt er að taka þátt í ein-
staklingskeppni og/eða fyrirtækjakeppni.
Hugmyndin er að útfæra verkefnið í anda
„Lýðveldishlaupsins“ og „Landshreyfingar-
innar“ – verkefna sem gengu mjög vel á
sínum tíma. Tilgangur verkefnisins er að
hvetja almenning til að stunda heilbrigða
hreyfingu sem og að ýta undir fleiri sam-
verustundir fjölskyldunnar.
Einstaklingskeppni
Til að taka þátt í einstaklingskeppninni
geta þátttakendur skráð sig inn á vefslóð-
ina ganga.is eða fengið göngubók á þátt-
tökustöðum. Þátttakendur skrá inn upp-
lýsingar um þá hreyfingu sem þeir hafa
stundað á ganga.is eða fá stimpil í göngu-
bók sem hægt verður að nálgast í Þjón-
ustumiðstöð UMFÍ, hjá sambandsaðilum,
í sundlaugum, íþróttahúsum, líkamsrækt-
arstöðum og á bensínstöðvum N1. Sú
hreyfing sem skrá má er að ganga eða
skokka 3 kílómetra, ganga á fjöll, hjóla 5
kílómetra eða synda 300 metra. Sérstök
viðurkenning verður veitt þeim sem
hreyfa sig í 30, 60 eða 80 skipti. Fyrir að
hreyfa sig í 30 skipti fá þátttakendur
bronsmerki, silfurmerki fyrir 60 skipti
og gullmerki fyrir 80 skipti. Þeim fimm
sem hreyfa sig mest verða veitt sérstök
verðlaun.
Sambandsaðilar hafa stungið upp á
fjöllum um allt land sem hægt verður að
ganga á. Þeir sem ganga á 5 fjöll fá brons-
merki, silfurmerki fyrir 10 fjöll og gull-
merki fyrir 20. Einnig verða 10 nöfn
þeirra sem skráð hafa nöfn sín í gesta-
bækurnar dregin af handahófi úr sérstök-
um potti og þeim aðilum veitt sérstök
verðlaun.
Fyrirtækjakeppni
Fyrirtækjakeppnin fer fram á sama tíma
og einstaklingskeppnin. Öll fyrirtæki og/
eða hópar geta tekið þátt í verkefninu.
Fyrirtækið/hópurinn skráir sig til leiks inn
á vefinn ganga.is. Fyrirtækið/hópurinn
þarf að setja hópinn sinn í réttan flokk
eftir fjölda meðlima í hópnum. Fyrir-
tækið/hópurinn skráir niður þegar ein-
hver úr hópnum gengur eða skokkar 3
kílómetra, gengur á fjöll, hjólar 5 kíló-
metra eða syndir 300 metra. Þeir þrír hóp-
ar sem hreyfa sig mest og í flesta daga fá
svo verðlaun.
Einnig keppa fyrirtæki í því hvaða þátt-
takendur hvers fyrirtækis hafa gengið á
flest fjöll. Hægt er að skrá fjallgönguna
ýmist þegar hópurinn fer saman eða þeg-
ar einstaklingar úr hópnum fara einir eða
í öðrum hópi í ferðir á fjöll. Sambands-
aðilar hafa stungið upp á fjöllum sem
verða sérstaklega auglýst til að ganga á
en vitaskuld er leyfilegt að skrá inn önn-
ur fjöll til keppni en þau sem tilgreind
hafa verið sérstaklega. Fyrirtækin/hóp-
arnir geta síðan skráð stutta lýsingu á
ferðinni og sett myndir inn á ganga.is
síðuna. Þau fyrirtæki/hópar sem fara
flestar ferðir á fjöll fá verðlaun.