Skinfaxi - 01.02.2010, Síða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Ég byrjaði í frjálsum íþróttum þegar
ég var sex ára gamall. Í byrjun var þetta
meira leikur og gaman en eftir því sem
ofar dró fór alvaran að verða meiri. Ég hef
eingöngu helgað mig frjálsum íþróttum
og aðrar íþróttir hafa ekki komist að. Það
má því segja að ég hafi æft frjálsar í um
14 ár,“ sagði Bjarki Gíslason, frjálsíþrótta-
maður úr Ungmennafélagi Akureyrar, í
samtali við Skinfaxa á dögunum. Bjarki,
sem verður tvítugur í sumar og útskrifast
frá Menntaskólanum á Akureyri, hefur
getið sér gott orð í frjálsum íþróttum síð-
ustu misseri. Hann hefur sýnt miklar fram-
farir og hefur nú skipað sér á bekk á með-
al fremstu frjálsíþróttamanna landsins.
Bjarki veit ekki hvað taki við hjá sér
þegar náminu við MA lýkur í vor. Hann
hyggur á framhaldsnám en hefur ekki
enn ákveðið hvar það verður.
Bjarki sagðist í spjallinu við Skinfaxa
ennþá vera í öllum greinum en nú sé
komið að því að einbeita sér að ákveð-
inni grein. Hann hafi verið töluvert í tug-
þrautinni og stangarstökkinu og það
gæti allt eins farið svo að hann einbeitti
sér að stönginni í framtíðinni.
– Hvert stefnir þú sem frjálsíþrótta-
maður?
„Ég ætla að stefna hátt, í það minnsta
að bæta mig og verða enn betri. Það
skiptir öllu að æfa vel og þá kemur í ljós
hvað það fleytir manni langt,“ sagði Bjarki.
Bjarki sagði ánægjulega þróun eiga
sér stað um þessar mundir hvað varðar
umfjöllun um frjálsar íþróttir. Honum
finnst hún meiri og jákvæðari.
„Það hefur margt hjálpað til í þessu
sambandi. Aðstaðan hefur gjörbreyst
víðs vegar um land með lagningu gervi-
efnis á hlaupabrautir. Á Akureyri, þar sem
ég bý, tók aðstaðan stakkaskiptum með
íþróttavellinum sem gerður var í tengsl-
um við Landsmót UMFÍ í fyrrasumar.
Uppbygging í kringum Unglingalands-
mótin hefur einnig verið jákvæð fyrir
íþróttina. Ennfremur eru að koma fram
mjög efnilegir einstaklingar og það skap-
ar að sjálfsögðu umræðu og umfjöllun.“
Bjarki sagðist ekki vera búinn að fá
atvinnu í sumar en hann stefnir að þátt-
töku í mörgum mótum á þessu ári. „Þau
mál skýrast vonandi fljótlega og þá getur
maður farið að skipuleggja sig betur,“
sagði Bjarki.
Aðspurður hvort hann ætti sér einhverj-
ar fyrirmyndir í frjálsum íþróttum sagði
Bjarki svo vera. Tugþrautarmaðurinn
Erki Nool og stangarstökkvarinn Sergei
Bubka hefðu alltaf verið í miklu uppá-
haldi hjá honum.
– Fer ekki mikill tími í æfingar hjá þér?
„Það er mjög misjafnt og fer líka eftir
því hvaða tími árs er. Stundum æfi ég
tvisvar á dag, 2–3 tíma í senn. Maður
æfir öðruvísi á veturna, en allan jafna fer
auðvitað nokkur tími í æfingar. Maður
þarf að leggja ýmislegt á sig til að ná
árangri. Ég á helling inni og er bjartsýnn
á framtíðina,“ sagði Bjarki Gíslason hress í
bragði í spjallinu við Skinfaxa.
Bjarki Gíslason,
frjálsíþróttamaður úr UFA:
Maður þarf
að leggja
ýmislegt
á sig til að
ná árangri
Frjálsar íþróttir: