Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 17
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Árangur á innanhússmótum í vetur er
mjög athyglisverður og nokkrir ungir
frjálsíþróttamenn eru að koma fram í
sviðsljósið. Það er deginum ljósara að upp-
bygging frjálsíþróttaaðstöðu víðs vegar
um landið skilar nú þegar bættum árangri.
Stefanía Valdimarsdóttir, frjálsíþrótta-
stúlka úr Breiðabliki, hefur heldur betur
látið að sér kveða. Hún sigraði í sex grein-
um á meistaramótinu 15–22 ára og bar
síðan sigur úr býtum í fjölþrautum á meist-
aramótinu. Það verður spennandi að
fylgjast með þessari efnilegu stúlku en
þarna er á ferðinni mikið efni sem á
eflaust eftir að láta mikið að sér kveða í
framtíðinni.
„Ég er að vinna að því að koma mér í
gott form fyrir sumarið. Ég er nýstigin upp
úr meiðslum en mér sýnist þetta allt á
réttri leið. Ég get því ekki annað en verið
bjartsýn fyrir komandi sumar,“ sagði
Stefanía í viðtali við Skinfaxa en hún er
að verða 17 ára gömul.
Stefanía segist hafa verið níu ára gömul
þegar hún hóf að æfa frjálsar íþróttir. Hún
var í fótbolta áður en hún segir mikla
íþróttahefð í fjölskyldunni. Einnig tók
hún fram að Unnur Stefánsdóttir frjáls-
íþróttakona hefði haft mikil áhrif á hana
að hún fór að æfa frjálsar íþróttir.
„Mér líst mjög vel á stöðuna í frjálsum
íþróttum í dag. Það eru að koma fram
mjög efnilegir krakkar. Ég er viss um að
frjálsíþróttahöllin í Laugardal er stærsta
ástæðan fyrir því hvað íþróttinni hefur
fleytt fram á síðustu árum. Einnig hefur
aðstaðan almennt batnað mikið hjá flest-
um félögum. Allt þetta hefur haft mikið
að segja, flestir eru að bæta sig og margir
hafa líka tekið ákvörðun að fara að æfa
frjálsar íþróttir,“ sagði Stefanía.
Stefanía sagði vakningu vera töluverða
í frjálsum íþróttum. Þetta væri skemmti-
leg íþrótt og góður félagsskapur.
– Nú ert þú ung að árum en hver eru
markmið þín?
„Ég á mínar fyrirmyndir. Fyrst skal nefna
Helgu Margréti Þorsteinsdóttur og hina
sænsku Carolinu Kluft. Markmið mín eru
að halda áfram á sömu braut, bæta mig
og verða enn betri,“ sagði Stefanía.
Millivegalengdir eru helstu greinar
Stefanía Valdimarsdóttir, frjálsíþróttakona úr Breiðabliki:
Markmið mín eru að bæta
mig og verða enn betri
Stefaníu en sigurinn í fjölþrautum á dög-
unum kom henni sjálfri á óvart því að hún
var að keppa í þeim í fyrsta skipti.
„Ég sé fyrir mér að ég eigi eftir að æfa
og keppa í frjálsum íþróttum í framtíð-
inni. Stefnan er að verða einhvern tímann
þátttakandi á ólympíuleikum. Til að það
gangi eftir verður maður að æfa af fullum
krafti, það má aldrei slá slöku við.“
– Hvað fer mikill tími í æfingar hjá þér?
„Ég æfi nánast daglega, í kringum 2–3
tíma á dag, en tek mér frí á sunnudögum.
Ég þarf að skipuleggja tímann vel, svo fer
einnig töluverður tími í námið en ég stunda
nám við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Þetta er allt undir góðri skipulagningu kom-
ið, lífið snýst um námið og frjálsar íþróttir.“
– Hvað sérðu fyrir þér í nánustu framtíð?
„Ég hlakka alveg ofsalega til tímabils-
ins í vor og sumar. Ég mun taka þátt í
mörgum mótum hér innanlands og eitt-
hvað á erlendri grundu. Ég keppi jafnvel í
Svíþjóð og svo er stefnan að vinna sér
sæti í landsliðinu og keppa í Evrópubik-
arnum,“ sagði Stefanía Valdimarsdóttir í
samtali við Skinfaxa.
Frjálsar íþróttir: