Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 19
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Íþróttadagur Félags áhugafólks um
íþróttir eldri borgara var haldinn í Austur-
bergi í Breiðholti 17. febrúar sl. Þetta var í
25. sinn sem þessi dagur er haldinn og
var mikil og góð stemning á hátíðinni. Á
þriðja hundrað manns komu á hátíðina
en þess má geta að þetta er jafnframt 25.
starfsár félagsins. Á íþrótta- og leikdegin-
um komu fram nokkrir hópar af Reykja-
víkursvæðinu og sýndu atriði við góðar
undirtektir áhorfenda.
Við upphaf íþróttadagsins minntist
Guðrún Nielsen, formaður FÁÍA, Gunnars
Haukssonar, fyrrum forstöðumanns í
Austurbergi, en hann féll frá í ágúst sl.
aðeins 58 ára gamall. Guðrún sagði hann
velgjörðamann félagsins sem hefði notið
greiðasemi hans um 15 ára skeið.
Þess má geta að fyrsti íþróttadagur
aldraðra var haldinn 1987 en fyrstu sex
árin var hann haldinn á gervigrasvellin-
um í Laugardal. Mikil vakning hefur orð-
ið í hreyfingu meðal eldri borgara hin
síðustu ár og er ljóst að hún mun aðeins
vaxa enn frekar á næstum árum.
Glæsilegur íþrótta-
dagur eldri borgara
Lindi ehf.
Ketilsbraut 13
640 Húsavík
Markmið lyfjafyrirtækisins GlaxoSmithKline er að gera fólki
kleift að áorka meiru, líða betur og lifa lengur.
Skaftárhreppur