Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2010, Síða 22

Skinfaxi - 01.02.2010, Síða 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, ásamt nokkrum starfs- mönnum úr ráðuneytinu, kom í heimsókn í Þjónustumiðstöð UMFÍ þann 19. janúar. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynn- ast starfsemi ungmennafélagshreyfingar- Mennta- og menningarmálaráðherra í heimsókn í Þjónustumiðstöð UMFÍ innar og þeim ótal verkefnum sem hún stendur fyrir vítt og breitt um landið. Mikil ánægja var með heimsóknina en samstarf og samskipti milli UMFÍ og ráðuneytisins hefur alla tíð verið mikið og gott. Frá vinstri: Berglind Rós Magnúsdóttir, ráðgjafi ráðherra, Auður B. Árnadóttir, á fjármálasviði, Anna R. Möller, forstöðu- maður Evrópu unga fólksins, Erlendur Kristjánsson, deildarstjóri í íþrótta- og æskulýðsdeild, Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, formaður UMFÍ, Katrín Jakobs- dóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, Sæmundur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri UMFÍ, Björg Jakobsdóttir, varaformaður UMFÍ, Einar Haraldsson, í stjórn UMFÍ, og Guðni Olgeirsson, sér- fræðingur í ráðuneytinu. HEIMSÓKN Árið 1952 keppti 15 ára gömul stúlka úr Reykjavík á Landsmóti UMFÍ á Eið- um. Þetta var Margrét Hallgrímsdóttir sem keppti fyrir Ungmennafélag Reykjavíkur. Margrét sló í gegn á mót- inu og sigraði með geysilegum yfir- burðum í 80 metra hlaupi og lang- stökki. Árangur hennar í langstökkinu, 5,23 metrar, var glæsilegt Íslandsmet sem stóð í 20 ár. Forráðamenn UMFÍ létu útbúa gull- pening handa Margréti til minja um afrekið. Á honum stendur: 1. verðlaun. Langstökk. Íslandsmet. Eiðar 1952. Af óþekktum ástæðum komst pening- urinn ekki í hendur Margrétar. Þegar verið var að pakka niður fyrir búferlaflutn- inga UMFÍ í Sigtún 42, fyrir stuttu síðan, kom peningurinn í ljós. Margrét var boðuð í Þjónustumiðstöð UMFÍ og henni afhentur peningurinn ásamt bókinni Vormenn Íslands þar sem m. a. er fjallað um afrek Margrétar. Hún varð glöð við og þakkaði innilega fyrir. Margrét starfaði lengi sem íþrótta- kennari við Álftamýrarskóla en er nú hætt störfum vegna aldurs. Nú eru liðin 58 ár frá því að hún vann afrek sitt á Eiðum og loksins hefur verðlaunapen- ingurinn hennar ratað á réttan stað. Margrét Hall- grímsdóttir með gullpen- inginn sem hún hlaut á Eiðum 1952. Fékk gullpening afhentan eftir 58 ár

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.