Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2010, Side 27

Skinfaxi - 01.02.2010, Side 27
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27 Úr hreyfingunni Á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta- og ung- mennafélags, sem haldinn var 25. febrúar sl., voru formaður og stjórn endurkjörin. Fundarstjóri aðalfundarins var Ellert Eiríksson og ritari Sigurvin Guðfinnsson. Fyrstu stjórnarmenn Knattspyrnufélags Keflavíkur (KFK) voru heiðraðir með gull- heiðursmerki félagsins. Það var Kári Gunnlaugsson, varaformaður Keflavíkur, sem nældi í þessa heiðursmenn, en Kári var síðasti formaður KFK. KFK var eitt af sex félögum sem sameinuðust undir merkjum Keflavíkur 1994. Starfsmerki voru veitt nokkrum félög- um. Silfur, fyrir tíu ára stjórnarsetu, var veitt Lilju Dögg Karlsdóttur, en Lilja var veðurteppt á Patreksfirði. Fjögur brons voru veitt fyrir fimm ára stjórnarsetu þeim Bjarna Sigurðssyni, Júlíusi Friðriks- syni, sund, Rannveigu Ævarsdóttur og Sigrúnu Ómarsdóttur, taekwondo. Starfs- bikar félagsins var veittur Rúnari H. Georgssyni. „Starf í öllum deildum stendur með blóma og við getum ekki annað en verið ánægðir. Fimleikarnir fengu nýja aðstöðu fyrir starfsemi sína sem mun skipta sköp- um fyrir deildina til framtíðar litið,“ sagði Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags. Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags: Formaður og stjórn endurkjörin Formenn og varaformenn Keflavíkur og Ungmennafélags Íslands. Frá vinstri: Einar Haraldsson, Helga Guðrún Guð- jónsdóttir, Björk Jakobsdóttir og Kári Gunnlaugsson. Helga Guðrún Guð- jónsdóttir, formaður, og Björk Jakobsdóttir, varaformaður UMFÍ, sæmdu þá Smára Helga- son og Andrés Hjaltason starfsmerki UMFÍ. Þuríður S. Árnadóttir, nýr formaður Ungmennafélags Akureyrar: Fékk bakteríuna aftur á Landsmótinu Aðalfundur Ungmennafélags Akureyr- ar, UFA, var haldinn 25. febrúar sl. Guð- mundur Víðir Gunnlaugsson, sem hafði gegnt formennsku sl. fjögur ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þuríður S. Árna- dóttir tók við formennskunni af Guð- mundi Víði. „Það gerðist nokkuð óvænt að ég varð formaður UFA. Svona gerast hlutirnir en þetta leggst bara vel í mig. Mitt áhuga- svið er frjálsar íþróttir sem UFA leggur mikið upp úr. Ég fékk bakteríuna á ný eftir vinnu mína á Landsmótinu í fyrra og ferð mína á Unglingalandsmótið,“ sagði Þur- íður Árnadóttir, nýkjörinn formaður UFA, í samtali við Skinfaxa. Þuríður hefur starfandi lengi innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Hún var um árabil í frjálsíþróttanefnd UMSE og framkvæmdastjóri sambandsins 1984 og 1987 í sumarstarfi. Fulltrúar UMFÍ á fundinum voru Har- aldur Þór Jóhannsson í varastjórn UMFÍ og Ómar Bragi Stefánsson landsfulltrúi. Íþróttamaður UFA var kjörinn Bjarki Gíslason en hann hefur skipað sér á bekk á meðal efnilegustu frjálsíþróttamanna landsins. „Þegar maður lítur yfir farinn veg held ég að það hafi bara gengið vel. Það var mikil búbót fyrir okkur að fá að halda Landsmót sem gekk mjög vel í alla staði. Frá því að félagið var stofnað hefur það alltaf verið réttum megin við strikið og vonandi verður svo áfram. Það hefur alltaf verið lagt upp með að hafa góða þjálfara hjá félaginu. Við eigum innan okkar raða mjög efnilega íþróttamenn sem eiga eflaust eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. UFA á bjarta framtíð fyrir sér og það er ánægjulegt að fá nýtt og öflugt fólk inn í stjórnina,“ sagði Guð- mundur Víðir Gunnlaugsson, fráfarandi formaður Ungmennafélags Akureyrar. Á stjórnarfundi 10. febrúar skipti ný stjórn með sér verkum: Formaður Þuríður S. Árnadóttir, varaformaður Svanhildur Karlsdóttir, gjaldkeri Hulda Ólafsdóttir, ritari Una Kr. Jónatansdóttir, meðstjórn- andi Gunnar Gíslason. Í varastjórn sitja María Aldís Sverrisdóttir og Rannveig Oddsdóttir (form. langhlauparadeildar). Þuríður S. Árna- dóttir, nýr for- maður UFA. Til hægri: Bjarki Gíslason, íþrótta- maður UFA.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.